fbpx
Fimmtudagur 12.desember 2024
Fókus

Deilur Brangelina rata aftur fyrir dómstóla – Segir Pitt haga sér eins og „pirrandi barn“

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 11. júlí 2023 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Miðlar vestanhafs loga nú vegna nýrra vendinga í deilu fyrrum leikarahjónanna Angelina Jolie og Brad Pitt. Ástarsamband þeirra, hjónaband og fjöldi barna vakti athygli heimsbyggðarinnar á sínum tíma, en ekki síður skilnaður þeirra og ítrekaðar harðvítugar deilur þeirra, sem flestar ef ekki allar hafa ratað fyrir dómstóla.

Í nýjum gögnum sem lögfræðingar Jolie lögðu fram fyrir dómstóla í gær hæðist hún miskunnarlaust að sínum fyrrverandi.

Í gögnunum hrekur Jolie fullyrðingar Pitt um að hafi byggt upp franska víngerð þeirra með þrotlausri vinnu, en hún segir hann í mesta lagi hafa heimsótt víngarðanna í þeim tilgangi að dást að vinnu franskra verkamanna sem sáu um uppbyggingu fyrirtækisins.

Pitt hefur sagt sig eins konar stórbónda síðustu ár og stært sig af víngerðarlandareigninni Château Miraval „Ég er bóndi núna,“ sagði hann í viðtali við Wine Spectator árið 2014, „Ég elska að læra um landið og hvaða akur er hentugur fyrir hvaða þrúgu, erfiðleikana þegar september og október renna upp: Erum við að tína í dag? Hvar er sykurmagnið? Hvernig er sýrustigið? Ætlar það að rigna? Þetta hefur mikill skóli fyrir mig. Mér finnst gaman að þrífa skóginn og ganga um landið.“

Jolie hæðist að því að Pitt kalli sig víngerðarmann

Hjónin keyptu víngerðina árið 2011, en þau skildu árið 2016 og hafa síðan rifist fyrir dómstólum, meðal annars um víngerðina. Lögfræðingar Pitt höfðu áður lagt fram gögn um að ákvörðun Jolie um að selja hlut sinn í fyrirtækinu leggi verkefnið, sem Pitt hefur lagt svo mikla persónulega vinnu í og byggt upp af eigin verðleikum, í hættu.

„Pitt er leikari, ekki víngerðarmaður. Hann fæst við blekkingar, ekki óhreinindi og vínber,“

segir í gögnum Jolie. „Á þeim árum sem hann var sagður „byggja“ upp fyrirtækið, tók hann upp og kom fram í tugum kvikmynda, svo ekki sé minnst á óteljandi kynningarframkomur, flug fram og tilbaka um allan heim fyrir frumsýningar kvikmynda og sótti fjölmargar Hollywood veislur. Þó hann hafi eflaust heimsótt vínekrurnar til að dást að verkum frönsku verkamannanna sem í raun gerðu viðskiptin farsæl, er Pitt enginn víngerðarmaður.“

Víngerðin er glæsileg
Glæsileg landareign og hús

Í þessum nýju gögnum heldur Jolie því fram að  Pitt hafi „rænt“ fyrirtækinu og eytt milljón dollara hagnaði í léttvæg verkefni, þar á meðal í endurnýjun hljóðvers í hans eigu. Er hann sagður hafa hagað sér eins og „pirrandi barn“ eftir að Jolie seldi hlut sinn í víngarðinum árið 2021. Lögfræðingar Jolie halda því fram að fyrirtæki Pitt skuldi hennar eigin eignarhaldsfélagi 350 milljónir dala. Pitt heldur því fram að Jolie hafi selt sinn hlut í fyrirtækinu eingöngu af hefnigirni við Pitt eftir skilnað þeirra, með sölunni hafi hún brotið gegn samkomulagi sem þau gerðu meðan þau voru enn gift og allt lék í lyndi.

Hjónin meðan ástin var enn til staðar
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Raunveruleikastjarna birti sláandi mynd – Hefur nánast eytt aleigunni að komast til botns í þessu

Raunveruleikastjarna birti sláandi mynd – Hefur nánast eytt aleigunni að komast til botns í þessu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Elísabet Reynis um Ozempic – „Mitt svar er einfalt og hreint NEI!“

Elísabet Reynis um Ozempic – „Mitt svar er einfalt og hreint NEI!“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Annie Mist sendir óvildarmönnum sínum pillu – Ekki á frammistöðubætandi lyfjum

Annie Mist sendir óvildarmönnum sínum pillu – Ekki á frammistöðubætandi lyfjum
Fókus
Fyrir 3 dögum

Guðni segist hafa sært, meitt og stolið: „En ég hef aldrei gert mistök“

Guðni segist hafa sært, meitt og stolið: „En ég hef aldrei gert mistök“