fbpx
Sunnudagur 15.desember 2024
Fókus

Áttu möguleika á að verða milljónamæringar en hún svaraði án þess að hugsa og hann þorði ekki að svara auðveldustu spurningu í heimi

Fókus
Mánudaginn 10. júlí 2023 21:06

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stundum er betra að hugsa áður en maður talar. Þessu fékk kona nokkur að kynnast þegar hún keppti í þættinum Hver vill verða milljónamæringur, á ögurstund.

Vassiliki Yiannoulis var keppandi  bandarísku þáttanna árið 2004. Henni tókst leikandi létt að komast í gegnum fyrstu sex spurningarnar og kvöldið leit vel út hjá henni. Þá var hún spurð um þekktan morgunverðarrétt sem seldur var á veitingastaðakeðjunni vinsælu Denny’s en rétturinn dró nafn sitt frá hugtaki sem notað er í íþróttum.

Möguleikarnir hennar voru:

a. Slam dunk
b. Touchdown
c. Knockout
d. Grand slam

Vassiliki hikaði ekki og valdi fyrsta valmöguleikann og tilkynnti að þetta væri hennar lokasvar, en hún hafði varla sleppt orðinu þegar hún áttaði sig á mistökum sínum. Hún hafði meint seinasta valkostinn – Grand slam.

Hún reyndi að leiðrétta sig, en það var of seint.

Í sömu þáttum árið  1999, þegar vinningarnir voru enn hærri, vakti það athygli þegar tölfræði sérfræðingurnn Toby Moore lenti í vandræðum eftir að hafa svarað 13 spurningum rétt í röð. Hann hafði unnið sér inn 34 milljónir en átti möguleikann á að tvöfalda vinninginn ef hann gæti svarað næstu spurningu sem fjallaði um vinsæla spilaleikinn Pokemon. Var Toby beðinn um að svara því til hver valmöguleikanna væri ekki Pokémon-skrímsli.

Möguleikarnir voru eftirfarandi:

a. Jigglypuff
b. Frodo
c. Squirtle
d. Pikachu

Toby notaði eitt af hjálpartólum sem keppendum bauðst, 50:50 þar sem valmöguleikum var fækkað niður í tvo. Eftir stóðu Jigglypuff og Frodo.

Toby hugsaði sig um nokkrar mínútur og ákvað svo að taka ekki áhættuna heldur láta sér nægja það sem hann hafði þegar unnið sér inn, frekar en að eiga á hættu að tapa því.

Áhorfendur heima göptu og áttu ekki orð, enda Jigglypuff meðal þekktari Pokémon-skrímsla og Frodo persóna úr Hringadróttinssögu.

Svona er lífið hverfult.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Megan Fox sá eitthvað óviðeigandi í síma MGK og hætti með honum – Er ítalska kyntröllið nýi kærastinn?

Megan Fox sá eitthvað óviðeigandi í síma MGK og hætti með honum – Er ítalska kyntröllið nýi kærastinn?
Fókus
Fyrir 4 dögum

Drottning Norðursins er laxveiðibók sem sætir tíðindum

Drottning Norðursins er laxveiðibók sem sætir tíðindum