fbpx
Mánudagur 06.janúar 2025
Pressan

Sérfræðingur segir að þetta þrennt eigum við að óttast við gervigreind

Pressan
Laugardaginn 15. júlí 2023 18:00

Gervigreind stýrir söguþræðinum í Terminator þar sem Arnold Schwarzenegger leikur aðalhlutverkið.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margir hafa miklar áhyggjur af gervigreind og telja að hún geti reynst mannkyninu skeinuhætt.

Gervigreind getur orðið jafn  banvæn fyrir mannkynið og kjarnorkuvopn og heimsfaraldrar. Af þeim sökum verður að taka hana mjög alvarlega. Þetta sagði í yfirlýsingu, sem 350 leiðtogar, vísindamenn og verkfræðingar, sem vinna við gervigreind, sendu frá sér í maí.

Meðal þeirra sem skrifuðu undir yfirlýsinguna er Sam Altman, forstjóri OpenAI sem stendur á bak við ChatGPT.

Það er full ástæða til að hafa áhyggjur að mati Thomas Terney, doktors í gervigreind. Þetta sagði hann í hlaðvarpinu Dato hjá TV2. „Ég er hræddur um að við missum stjórn á þessu,“ sagði hann og nefndi þrjár ástæður fyrir því að fremstu sérfræðingar heims, á þessu sviði, eru smeykir við gervigreind.

Fyrsta ástæðan er að vopn geta snúist gegn fólki. Sérfræðingar telja að vopnakerfi, sem byggjast á gervigreind, geti snúist gegn fólki. Terney sagði að ekki megi skilja þetta sem svo að slík vopn geti þróað sínar eigin óskir og ákveðið meðvitað að ráðast á fólk en nefndi ímyndað sviðsmynd til að skýra hvað hann á við.

Dróni, sem byggist á gervigreind, hefur að aðalmarkmiði að skjóta flugskeyti óvinanna niður og fær stig eftir því hversu mörg hann hæfir. En áður en hann skýtur á flugskeyti þarf hann að fá heimild til þess hjá manneskju. Á einhverjum tímapunkti verður manneskjan takmarkandi þáttur í tengslum við hversu mörg stig hann getur fengið fyrir að skjóta flugskeytin niður. Það getur orðið til þess að hann tekur manneskjuna út úr dæminu,“ sagði hann.

Önnur ástæðan er að við eigum að hans mati á hættu að missa stjórnina á gervigreind. Hún er ekki með mannleg viðmið eða gildi. Það þýðir að hún getur fundið upp leiðir til að leysa ákveðin vandamál. Leiðir sem fólk getur ekki séð fyrir að gervigreindin muni nota og sagði:

„Ef ég bið gervigreind um að sjá til þess að ungabarn hætti að grát, þá ímynda ég mér að sjálfsögðu eitthvað í líkingu við að það vaggi barninu. En hvernig setjum við upp gildisviðmið svo gervigreindin hugsi ekki bara: „Ókei, ef barnið á að hafa hljótt, af hverju set ég það ekki bara undir vatn?““

Þriðja ástæðan er að hans mati vel þekkt vandamál tengt gervigreind. Það er hversu auðvelt það er að nota hana til að dreifa röngum upplýsingum. Sem dæmi má nefna að í lok maí var mynd á flugi á netinu af sprengjuárás á Pentagon. Þessi mynd var gerð af gervigreindarforriti.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Maðurinn í Teslunni: Konan fór frá honum um jólin vegna gruns um framhjáhald

Maðurinn í Teslunni: Konan fór frá honum um jólin vegna gruns um framhjáhald
Pressan
Fyrir 2 dögum

Nóbelsverðlaunahafi segir auknar líkur á að gervigreind útrými mannkyninu

Nóbelsverðlaunahafi segir auknar líkur á að gervigreind útrými mannkyninu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þetta hefur aspasspákonan að segja um árið 2025

Þetta hefur aspasspákonan að segja um árið 2025
Pressan
Fyrir 3 dögum

Skoskur grínisti sturlaðist á bandarískum flugvelli

Skoskur grínisti sturlaðist á bandarískum flugvelli
Pressan
Fyrir 4 dögum

Árásarmaðurinn fæddur og uppalinn í Bandaríkjunum og þjónaði í hernum – Lögregla skoðar möguleg tengsl við ISIS

Árásarmaðurinn fæddur og uppalinn í Bandaríkjunum og þjónaði í hernum – Lögregla skoðar möguleg tengsl við ISIS
Pressan
Fyrir 4 dögum

Dularfulla brúin í Skotlandi – Af hverju stökkva hundar í dauðann þegar þeir koma að henni?

Dularfulla brúin í Skotlandi – Af hverju stökkva hundar í dauðann þegar þeir koma að henni?