fbpx
Mánudagur 22.júlí 2024
Eyjan

Endurfjármögnun upp á 25 milljarða hjá Arctic Fish á Vestfjörðum – Mikilvæg hvatning um áframhaldandi uppbyggingu

Eyjan
Mánudaginn 10. júlí 2023 17:14

Neil Shiran Þórisson, fjármálastjóri Arctic Fish.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arctic Fish ehf. hefur undirritað samkomulag um 25 milljarða króna endurfjármögnun á félaginu með sambankaláni DNB, Danske Bank, Nordea og Rabobank. Um er að ræða lánasamning til þriggja ára með möguleika á framlengingu. Fjármagnið verður notað til uppgreiðslu núverandi lána og fjármögnunar áframhaldandi vexti félagsins segir í tilkynningu.

Í henni kemur fram að endurfjármögnun Arctic Fish verði tengd sjálfbærnimarkmiðum félagsins. Félagið á og rekur sína eigin landeldisstöð á seiðum, sem er ein fullkomnasta í heimi þegar kemur að endurnýtingu vatns og notkun á hreinum orkugjöfum.

„Mikil ánægja ríkir um fjármögnunina sem mun styðja við framtíðaráherslur félagsins. Nú hefst frágangur lánasamninga og er endurfjármögnunin háð hefðbundnum fyrirvörum um frágang slíkra lánaskjala,“ segir Neil Shiran Þórisson, fjármálastjóri Arctic Fish.

Félagið hefur verið í stefnumörkun á sviði sjálfbærnimála og vinnur að innleiðingu þeirra í samræmi við alþjóðamælikvarða. Lánið er tengt sjálfbærnimarkmiðum og árangri félagsins á því sviði. Neil Shiran segir að það muni hafa jákvæð áhrif á vaxtakjör til framtíðar og veita mikla hvatningu til áframhaldandi góðra verka sem félagið ætli sér að standa undir. Bankarnir sem standa að endurfjármögnuninni munu verða upplýstir um árangur sjálfbærnimarkmiða félagsins og sinna eftirfylgni þeirra.

Ört stækkandi félag á Vestfjörðum

Arctic Fish er ört vaxandi laxeldisfélag með starfsemi á Vestfjörðum. Félagið á og rekur sína eigin landeldisstöð á seiðum, sem er ein fullkomnasta í heimi þegar kemur að endurnýtingu vatns og notkun á hreinum orkugjöfum. Í lok júní störfuðu yfir 100 manns hjá Arctic Fish samstæðunni og er áætlað að það fjölgi um 20 manns til viðbótar fram að áramótum.

Hægt er að framleiða um 4 milljónir fiska á landi í stöðinni. Þá er sjóeldisstarfsemi félagsins í miklum vexti og er stefnan sett á um 15 þúsund tonna sölu á laxi í ár með vöxt upp í um 22 þúsund tonn á næstu þremur árum. Í starfsstöð fyrirtækisins í Bolungarvík er um þessar mundir verið að taka í notkun hátæknivinnsluhúsnæði sem mun sjá um vinnslu og pökkun félagsins. Félagið hefur fjárfest í sérhæfðum mannvirkjum og eldisbúnaði fyrir um 18 milljarða króna og er enn að fjárfesta í seiðaframleiðslu. Þá er félagið með um 11 milljarða bundna í laxabirgðum í sjó.

Árið 2023 stefnir í að vera stærsta ár í sögu félagsins þegar kemur að veltu og umfangi rekstrar og fjárfestinga.

Stærsti eigandi Arctic Fish ehf. er MOWI, stærsta laxeldisfyrirtæki í heimi, og næst stærsti hluthafinn er Síldarvinnslan hf. Sterkir eigendur, vaxtaráform félagsins og hágæða afurðir úr sjálfbæru eldi eru sagðir skapa traustan grunn fyrir endurfjármögnuninni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Borgin heldur áformum um flugvöll í Hvassahrauni til streitu og Njáll Trausti furðu lostinn – „Enginn pólitíkus á íslandi er að fara að skrifa upp á það“

Borgin heldur áformum um flugvöll í Hvassahrauni til streitu og Njáll Trausti furðu lostinn – „Enginn pólitíkus á íslandi er að fara að skrifa upp á það“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Flugfélög: Icelandair stundvísast allra stærri flugfélaga í Evrópu

Flugfélög: Icelandair stundvísast allra stærri flugfélaga í Evrópu
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Miskunnsamur Samverji lögum samkvæmt

Þorsteinn Pálsson skrifar: Miskunnsamur Samverji lögum samkvæmt
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lífskjör: Kaupmáttur á Íslandi mun minni en hjá nágrannaþjóðum – þriðjungi meiri í Færeyjum

Lífskjör: Kaupmáttur á Íslandi mun minni en hjá nágrannaþjóðum – þriðjungi meiri í Færeyjum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Áslaug Arna teflir öllu fram og segir Sjálfstæðisflokkinn geta gert margt betur – „Sorglegt að sjá víða að við förum ekki betur með fé“

Áslaug Arna teflir öllu fram og segir Sjálfstæðisflokkinn geta gert margt betur – „Sorglegt að sjá víða að við förum ekki betur með fé“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ólafur Stephensen: Samkeppnisyfirvöldum kippt út – eins og dómarinn sé tekinn út af og annað liðið ráði reglunum

Ólafur Stephensen: Samkeppnisyfirvöldum kippt út – eins og dómarinn sé tekinn út af og annað liðið ráði reglunum