Domino’s á Íslandi hefur samið við hið nýstofnaða hugbúnaðarfyrirtæki Apparatus um þróun og rekstur apps Domino’s sem hefur gengt lykilhlutverki í velgengni fyrirtækisins undanfarin ár. Kemur þetta fram í fréttatilkynningu.
Ísland er eitt söluhæsta land í heimi af öllum markaðssvæðum Domino´s, en vinsældir íslenska appsins eiga þar stóran hlut að máli. Um 15.000 pantanir eru afgreiddar í gegnum appið í hverri viku, en um 80 þúsund íslendingar nota það reglulega. „Það er mikill heiður fyrir okkur að fá Domino´s appið í hendur til áframhaldandi þróunar og mikil traustsyfirlýsing við teymið okkar. Domino´s er eitt vinsælasta app á Íslandi, mjög tæknilega þróað og býður viðskiptavinum sínum framúrskarandi notendaupplifun. Við byggjum því á góðum grunni en þróun er hröð í applausnum og neytendur gera sífellt meiri kröfur. Við erum sannarlega spennt fyrir framhaldinu,” segir Garðar Þorsteinsson, sem sér um viðskiptaþróun og ráðgjöf hjá Apparatus, sem hannar og þróar öpp. Hann segir að Apparatus sé með fleiri járn í eldinum en þegar eru í þróun metnaðarfullar applausnir fyrir Lyfju og Atlantsolíu, auk annarra verkefna. „Domino´s hefur átt mjög farsælt samstarf undanfarin ár við Vettvang, systurfyrirtæki Apparatus, um þróun veflausna. Þarna eru sömu aðilar að baki sem við treystum vel. Við náum líka ákveðnum samlegðaráhrifum þar sem appið og vefurinn þurfa að ganga í takt hvað varðar þróun.” segir Egill Þorsteinsson, forstöðumaður stafrænnar þróunar hjá Domino´s.