Bragi Gunnlaugsson, eða „Hjóla-Karen“ eins og hann hefur verið kallaður, er duglegur að birta myndbönd á Twitter með myndskeiðum af Hverfisgötu í Reykjavík, en götuna hjólar Bragi daglega á leið til og frá vinnu.
Iðulega gerist það að bílstjórar svína fyrir Braga eða bifreiðum er lagt uppi á hjólastígnum, sem er með öllu óheimilt samkvæmt umferðarlögum. Í myndbandi sem Bragi birti í dag má sjá dæmi um bæði tilvik.
Fyrst má sjá bíl ekið niður einstefnugötuna Frakkastíg og beygt til hægri inn Hverfisgötu. Þar stoppar bílstjóinn í miðri beygju og má heyra Braga kalla „Hvað ertu að gera“ þar sem bílstjórinn hafi stoppað í beygjunni, segir Bragi að líklega hafi konunni brugðið að sjá hann hana aðvífandi.
Um 50 metrum lengra má svo sjá stórum leigubíl lagt upp á hjólastíg, þrátt fyrir að fjölmörg bílastæði séu laus á stæðinu beint fyrir ofan, auk þess sem þar er hægt að stöðva bíl tímabundið til að hleypa farþegum inn og út. Bankar Bragi í bílinn um leið og hann hjólar framhjá. Að hans sögn segir hann leigubílstjórann hafa komið hlaupandi á eftir honum og má heyra Braga segja: „Þetta er ekki bílastæði sko.“
Ég held að ég væri geðveikt góður svona New York bike messenger. Sérstaklega þegar leigubílstjórar koma hlaupandi á eftir mér til að berja mig 🔉😂 pic.twitter.com/H0PxfVoAmc
— Peter Bragiel (@BragiGunnlaugss) July 6, 2023
Um atvikið segir Bragi: „Mér finnst svona létt bank bara vera svo náið og vinalegt. Þó að þessi ágæti maður hafi látið eins og ég hafi kastað múrsteini í gegnum gluggann hjá honum.“
Mbl.is tók Braga tali um miðjan desember í fyrra. Þar segist hann hafa hjólað lítið áður en hann flutti til Kaupmannahafnar í þrjú ár. Þar tók hann upp hjólalífsstílinn og hefur síðan hjólað hér heima.
Aðspurður um af hverju hann er með myndavél á sér svarar Bragi að fyrir nokkrum árum hafi hann lent í slysi þegar bílhurð var opnuð á hann á fleygiferð á Hverfisgötunni. Hjólið skemmdist og úr varð töluvert tjón.
„Þá þurfti ég að sanna það gagnvart tryggingarfélaginu að það hefði verið opnað á mig. Ég spyr: „Hvernig á ég að sanna það?“ og fæ svarið: „Tja, þú getur verið með myndavél“. Þannig ég hugsa bara: „Fínt, ég fæ mér þá bara myndavél.“
Segist hann aldrei hafa orðið fyrir bíl á Hverfisgötunni, sem er í raun ótrúlegt miðað við mörg myndbönd hans á Twitter, og má ljóst vera að þar er varkárni Braga að þakka, frekar en bílstjórum sem svína fyrir hann og/eða leggja á hjólastíg og gangstétt.
Segir Bragi að tuð hans á Twitter snúi að því að sýna fram á hversu lítið þarf að bregða út af til að slys verði.