Lögregluaðgerð stendur yfir við Vatnsnesveg í Reykjanesbæ. Hefur hið minnsta fjórum götum verið lokað: Vatnsnesvegi, Hafnargötu, Framnesvegi og Básvegi.
„Götur við Vatnsnesveg eru lokaðar á þessari stundu og biðjum við vegfarendur um að virða lokanir. Þær götur sem lokanir hafa áhrif á eru Vatnsnesvegur, Hafnargata, Framnesvegur og Básvegur svo eitthvað sé nefnt,“ segir í tilkynningu lögreglu.
Ekki kemur fram hvers eðlis aðgerðin sé.
Samkvæmt upplýsingum frá Brunavörnum Suðurnesja óskaði lögregla eftir því að sjúkrabíll yrði tiltækur á vettvangi, við Hafnargötu.
DV náði sambandi við Ágúst Dearborn, eiganda Café Petite sem er við Framnesveg 23, í hringiðu aðgerðanna. „Við erum búin að slökkva ljósin, læsa og koma öllum út í horn,” segir Ágúst sem var mjög brugðið yfir ástandinu. Aðspurður sagði hann að lögregla hefði ekki verið í sambandi við sig vegna atburðanna. „Ég er hálfhissa á því, það kom bara inn hérna viðskiptavinur og sagði að lögreglan væri búin að loka götunum hérna í kring út af vopnuðum manni,“ segir Ágúst en hann og hans fólk láta lítið fyrir sér fara á meðan aðgerðum lögreglu stendur. Aðspurður segist hann ekki hafa séð til mannsins sem á að vera vopnaður í nágrenninu, og enginn sem hann þekkir.
Í tilkynningu frá lögreglu kl. 22.49 segir: „Klukkan 21:05 barst lögreglunni á Suðurnesjum tilkynning um grunsamlegar mannaferðir þar sem sést hafi til aðila sem kynni að vera vopnaður skotvopni.
Verklag vegna slíkra mála var virkjað sem krafðist þess að lögreglan þurfti að loka af litlum hluta af Reykjanesbæ til að ganga úr skugga um að hvort fyrrnefnt atvik væri rétt. Að lokinni frekari vinnu og upplýsingaöflun á vettvangi lauk aðgerðum lögreglu núna klukkan 22:30. Enginn aðili hefur verið handtekinn vegna málsins.“