Íslenska karlalandsliðið í flokki 19 ára og yngri hefur leik í lokakeppni Evrópumótsins á morgun.
Mótið fer fram á Möltu og mætir Ísland Spáni í sínum fyrsta leik.
Í lokakeppninni spila átta landslið í tveimur riðlum og er Ísland í B-riðli með Spáni, Grikklandi og Noregi.
A-riðill samanstendur svo af Ítalíu, Portúgal, Möltu og Póllandi.
Leikurinn gegn Spáni hefst klukkan 19:00 annað kvöld.