Landris er aftur hafið á Reykjanesskaga, en risið hefur verið nokkuð stöðugt frá apríl. Töluverð skjálftavirkni hefur verið á svæðinu, en almennt er talið að eldgosatími sé hafinn á Reykjanesinu sem geti staðið yfir næstu áratugi og jafnvel áarhundruðin.
Hildur María Friðriksdóttir, náttúruvásérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir þó ekkert benda til þess að eldgos sé að hefjast á næstunni.
„Það er ekkert sem bendir til þess, eða að það sé yfirvofandi á næstu dögum, en allt Reykjanesið er virkt svo þetta mun líklega enda með öðru gosi eða innskoti – en innskot þýðir svona í grófum dráttum að það myndast kvikugöng neðanjarðar, eða eins konar neðanjarðar-eldgos.“
Það eina sem landrisið sýni sem stendur sé að kvika sé að safnast, frekar stöðugt, undir Fagradalsfjalli á nokkuð miklu dýpi, en jörð hefur risið um 2,5 sentimetra við Fagradalsfjall frá byrjun apríl.
Aðspurð hvort að landsmenn megi búast við jafn snörpum og tíðum skjálftum og áttu sér stað í aðdraganda eldgossins við Fagradalsfjall árið 2021, segir Hildur María að ómögulegt sé að segja til um slíkt. Þar sem eldgos hafi þegar átt sér stað á því svæði þá sé kvikukerfið, eða undirlagið, búið að breytast og því ekki víst að skjálftavirkni verði aftur með sama hætti, þó að um gos á svipuðum slóðum verði um að ræða. Ljóst sé þó að svæðið er virkt, þegar hafi tvö gos átt sér stað, jarðskjálftavirkni hefi verið nokkur undanfarið en þó séu engin merki um skyndilegar breytingar.
Mbl.is ræddi við Benedikt Gunnar Ófeigsson, sérfræðing á sviði jarðskorpuhreyfinga hjá Veðurstofu Íslands. Hann tók fram að landrisið sé ekki mjög hratt, en sé víðáttumikið og sjáist um allt Reykjanes. Líklega bendi þetta til þess að kvika sé nú að safnast á svipuðum slóðum og síðustu ár. Benedikt telur að hér sé mögulega hafið tiltekið ferli sem geti tekið langan tíma og á þessu stigi sé erfitt að spá fyrir um þróunina.
„Það þarf alla vega að gera ráð fyrir að þetta haldi áfram og endi með öðru gosi, það er einn möguleiki sem er ekkert ólíklegur, en tímaskalinn er mjög óljós. Það geta verið mánuðir eða ár.“
Gaman er að minnast þess að Benedikt vakti töluverða athygli fyrir eldgosið 2021 eftir að hafa varfærnislega sagt í samtali við fréttastofu RÚV að hann ætti síður von á gosi, sem var svo slegið upp í fyrirsögn, en gosið hófst um einum og hálfum tíma eftir að fréttin fór í loftið. Vakti þessi tímasetning mikla kátínu á samfélagsmiðlum þar sem fólk birti færslur og sagðist síður eiga von á hinu og þessu.
Á síður von á aukafréttatíma
— TraustiGPT (@Traustisig) March 19, 2021
Við jarðeðlisfræðinginn sem sagði í fréttum Rúv fyrir nokkrum klukkustundum að hann ætti síður von á gosi vil ég bara segja: Ásgeir Jónsson hló að blaðamönnum sem töldu íslenskt bankahrun yfirvofandi og sjáðu hvar hann er í dag.
— Hllgrmr Odssn (@hallgrimuro) March 19, 2021
Ég á síður von á lottóvinning.
— Ó L I · G 🇺🇦 (@drugrev) March 19, 2021
Á síður von á sviðasultu!
— Arnór Bogason (@arnorb) March 21, 2021
Í gærkvöldi var ég einmitt að lesa fréttina: "Á síður von á eldgosi" þegar Gísli Marteinn sagði að gosið væri byrjað. Aumingja Benedikt Ófeigsson, jarðeðlisfræðingur.!
— Arnmundur Sighvatsson (@arnmund) March 20, 2021
Ánægður með gamla jinx trikkið:
“Á síður von á eldgosi” pic.twitter.com/Qfln0B2v1m— Guðmundur H. (@gudmundurhg) March 19, 2021