Eldur kviknaði í einbýlishúsi í Holtsbúð í Garðabæ um tvöleytið í nótt og voru allir fjórir dælubílar slökkviliðsins kallaðir út.
Fjórir einstaklingar og köttur voru í húsinu þegar eldurinn kom upp og komust þeir út af sjálfsdáðum. Enginn var fluttur á slysadeild. Mbl.is greinir frá að eldurinn kviknaði í geymslu í húsinu og var staðbundinn við það rými. Um timburhús er að ræða og því talsverð vinna að sögn varðstjóra að tryggja vettvang, það er að komast inn í veggi til að tryggja að ekki væri meiri eldur í húsinu Töluverðar skemmdir urðu á húsinu vegna reyks. Ekki er vitað um eldsupptök, en slökkvistarfi lauk um fimmleytið.
Síðasti sólarhringur var annasamur, sjúkrabílarnir fóru í 135 verkefni og dælubílarnir fóru í átta verkefni.