Skoski tónlistarmaðurinn Lewis Capaldi var greindur með Tourette sjúkdóminn síðastliðið haust. Söngvarinn sem er 26 ára hefur verið opinn með sjúkdóminn og sagði í viðtölum í fyrra að hann væri að læra á sjúkdóminn.
Tourette er taugasjúkdómur sem einkennist af hreyfi- og hljóðkækjum, en Capaldi segir axlir sínar kippast til þegar hann verður spenntur, glaður, kvíðinn eða stressaður. Sagðist hann vilja vera opinskár svo áhorfendur héldu ekki að kippirnir væru vegna fíkniefnaneyslu.
Capaldi nýtur gríðarlega vinsælda um allan heim og hefur haldið tónleika víðs vegar. Tónleikaferðalögin valda þó einnig auknu álagi og hefur komið fyrir að söngvarinn nær ekki að syngja á tónleikum vegna sjúkdómsins. Áhorfendur hafa því oft komið honum til aðstoðar og tekið við þegar sjúkdómur Capaldi hamlar honum að syngja.
Slíkt atvik gerðist á Glastonbury hátíðinni síðustu helgi.b„Fötlun er ekki eitthvað sem þarf að fela. Hún er til staðar samhliða velgengni og gleði. Við vonum að Lewis geti tekið sér frí núna fyrir verðskuldaða hvíld,“ segir í færslu Mental Health Movement í Bretlandi þar sem samtökin deila myndbandi BBC. Þar má sjá Capaldi byrja að syngja lagið Someone You Loved , þegar kækirnir taka yfir svo Capaldi er ófær um að syngja áfram tekur áhorfendaskarinn við. Fallegt og magnað augnablik.
Á þriðjudag var tilkynnt að Capaldi hefur aflýst tónleikaferðalagi sínu í ár, en fjölmargir tónleikar voru framundan í átta löndum, þar á meðal Íslandi. Í yfirlýsingu segir Capaldi að hann ætli að taka sér hvíld frá tónleikaferðalögum um ókomna framtíð til að aðlagast áhrifum Tourette sjúkdómsins.