Nú um helgina, 1. og 2. júlí, boðar Veitingafélagið til góðgerðadaga á öllum veitingastöðum félagsins. Þessa daga mun 50 prósent af allri sölu á veitingastöðunum renna til góðgerðamála.
„Þetta er samstarfsverkefni margra aðila en við viljum sérstaklega þakka okkar frábæru birgjum sem tóku hugmyndinni vel og ákváðu að taka þátt í verkefninu með okkur,“ segir Jón Friðrik Þorgrímsson, framkvæmdastjórir Veitingafélagsins. Birgjarnir sem tóku þátt eru Mata, Ölgerðin, Garri, Síld og fiskur, Esja, Gæðafæði, Innnes, Gæðabakstur og Ekran að sögn Jón Friðriks.
Veitingafélagið er ört vaxandi fyrirtæki en undir hatti þessu eru nú fjórir veitingastaðir á átta sölustöðum. Staðirnir sem um ræðir eru Bankinn bistro í Mosfellsbæ, (www.bankinnbistro.is ), hamborgarastaðurinn Burgeis í hraðhöllinni Hagasmára 9, Hlöllabátar á Höfðanum, Bústaðavegi, Smáralind og í hraðhöllinni Hagasmára 9 og Mandi í Hæðasmára, Fákafeni og Veltusundi.
Forsvarsmenn Veitingafélagsins hafa ákveðið að það sem safnast um helgina muni renna til eftirfarandi félaga.
Bumbuloni – styrktarfélag fyrir fjölskyldur langveikra barna – í minningu Björgvins Arnars sem lést sex ára að aldri árið 2013. www.bumbuloni.is
Reykjadalur – sumarbúðir í Mosfellsdal fyrir fötluð börn og ungmenni. www.reykjadalur.is
Umhyggja – regnhlífasamtök sem vinna að bættum hag langveikra barna og fjölskyldna þeirra. www.umhyggja.is
Pieta samtökin – forvarnarsamtök gegn sjálfsvígum. www.pieta.is
Al-anon samtökin, 12 spora húsið – til hjálpar fjölskyldum og vinum alkóhólista. www.alanon.is