fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Eyjan

Harma mjög brotin og boða til hluthafafundar í Íslandsbanka

Eyjan
Mánudaginn 26. júní 2023 22:32

.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stjórn Íslandsbanka hyggst boða til hluthafafundar  þar sem stjórn og stjórnendur munu fjalla um framkvæmd bankans á útboði Bankasýslu ríkisins á 22,5% eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka sem fram fór hinn 22. mars 2022. Þetta kemur fram í tillkynningu á vef Íslandsbanka en í henni kemur fram að ákvörðunin hafi verið tekin í  kjölfar tilkynningar Bankasýslu ríkisins í dag þar sem óskað er eftir slíkum fundi.

Í tilkynningunni kemur fram að bankinn og stjórnendur hans harmi mjög þau brot sem fram komu í sáttinni við Fjármálaeftirlitið sem endaði með sekt upp á 1,2 milljarð króna, sem er sú hæsta í sögunni.

Á hluthafafundinum verður farið ítarlega yfir málsatvik og þær úrbætur og breytingar sem þegar hafa verið gerðar eða eru í vinnslu.

Dagsetning fundarins hefur ekki verið ákveðin en boðað verður til hans á næstu dögum .

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Rasismi sagður á uppleið í Frakklandi – Spennan magnast fyrir seinni umferð þingkosninganna – Ofbeldisverk framin af bæði vinstri og hægri mönnum

Rasismi sagður á uppleið í Frakklandi – Spennan magnast fyrir seinni umferð þingkosninganna – Ofbeldisverk framin af bæði vinstri og hægri mönnum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Samfélag til að græða á

Sigmundur Ernir skrifar: Samfélag til að græða á