Phil Foden, stjarna Manchester City, er sagður hafa gert allt vitlaust á strönd í Grikklandi um helgina.
Foden er nú í sumarfríi eftir erfitt tímabil á Englandi en leikmenn Man City snúa aftur til æfinga í júlí.
Enskir miðlar fjalla um að Foden hafi fengið gríðarlega athygli á ströndinni á Mykonos og var erfitt fyrir miðjumanninn að fá frið.
Foden reyndi að skemmta sér ásamt kærustu sinni, Rebecca, og sást bæði sparka í bolta áður en hann lét sig hverfa.
Það var erfitt fyrir Foden að fá frið fyrir fólkinu og ákvað hann að lokum að sleppa ströndinni og finna sér notalegan stað til að veiða.
Myndir af honum í fríinu má sjá hér.