Karlmaður á þrítugsaldri sem varð fyrir líkamsárás í miðborginni á aðfaranótt laugardags er látinn.
Maðurinn sem handtekinn var í tengslum við rannsókn málsins var síðdegis í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í gæsluvarðhald til 29. júní á grundvelli rannsóknarhagsmuna.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu sem getur ekki veitt meiri upplýsingar um málið að svo stöddu.
Áður hefur komið fram að átök voru á milli mannanna tveggja á skemmtistað í miðborginni en ekki var talið að notast hefði verið við vopn í átökunum.