fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Fréttir

Íbúar Grindavíkur flokka ekki sorp til einskis

Jakob Snævar Ólafsson
Föstudaginn 23. júní 2023 18:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Borið hefur á því í umræðum á Facebook meðal íbúa í Grindavík að þeir segjast hafa orðið vitni að því að sorpi sem þeir hafa samviskusamlega flokkað sé öllu blandað saman þegar þegar því er sturtað í sorpbíla þegar verktakar á vegum Grindavíkurbæjar hafa komið til að hirða sorpið.

DV leitaði til Atla Geirs Júlíussonar, sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs Grindavíkurbæjar, og spurði hvort hann hefði orðið var við þessa umræðu. Svo reyndist vera. Atli sagði von á tilkynningu frá verktakanum Terra, sem sér um sorphirðu í bænum, og Kölku, sorpeyðingarstöð Suðurnesja, sem hefur þó ekki borist þegar þessi orð eru rituð.

Atli tjáði fréttamanni DV að samkvæmt upplýsingum frá þessum aðilum hafi vissulega verið sturtað úr tvískiptum tunnum, sem nýlega voru teknar í notkun í bæjarfélaginu og eru annars vegar fyrir lífrænan úrgang og hins vegar fyrir blandaðan úrgang, í sama sorpbíl en þil sé í bílnum sem haldi þessum úrgangsflokkum aðskildum.

Fyrir íbúum Grindavíkur hefur virst sem svo að þessum flokkum væri blandað saman við sorphirðu, þegar þeim væri uppálagt að aðskilja þá, en svo virðist sem að sú sé ekki raunin. Starfsmaður Kölku hefur fylgst með starfsmönnum Terra þegar þeir hafa sturtað úr tvískiptu tunnunum í sorpbíla og staðfestir að þessum úrgangsflokkum hafi verið haldið aðskildum.

Borið hefur á því að íbúar hafa séð starfsmenn Terra sturta úr grendargámum fyrir plast og grendargámum fyrir pappír í einn og sama sorpbílinn. Íbúar sem hafa tjáð sig á Facebook hafa lýst yfir óánægju vegna þessa. Atli hefur fengið þær upplýsingar að pappírnum sé fyrst þjappað vel í sorpbílnum og síðan sé plastinu komið fyrir. Þegar bíllinn er losaður í Kölku sé síðan séð til þess að fullur aðskilnaður sé á milli þessara úrgangsflokka.

Þeir íbúar sem hafa tjáð sig um málið hafa velt því fyrir sér hvort þeir séu að flokka sorp til einskis en Atli áréttar að svo sé alls ekki.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Árekstur þriggja bíla við Hamraborg – Dælubíll og þrír sjúkrabílar sendir á vettvang

Árekstur þriggja bíla við Hamraborg – Dælubíll og þrír sjúkrabílar sendir á vettvang
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Fjárfestar hafa sölsað undir sig tæplega 90% seldra íbúða á árinu – „Þetta er ógeðslegt þjóðfélag, þetta er allt ógeðslegt“

Fjárfestar hafa sölsað undir sig tæplega 90% seldra íbúða á árinu – „Þetta er ógeðslegt þjóðfélag, þetta er allt ógeðslegt“
Fréttir
Í gær

Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins styður ekki Coda Terminal verkefnið við Vellina – Þyrfti aðkomu minnihlutans til að koma málinu í gegn

Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins styður ekki Coda Terminal verkefnið við Vellina – Þyrfti aðkomu minnihlutans til að koma málinu í gegn
Fréttir
Í gær

Líkfundur á Tenerife í tengslum við leitina að Jay Slater

Líkfundur á Tenerife í tengslum við leitina að Jay Slater
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Harmleikur í hitabylgju – Gleymdi tveggja ára dóttur sinni úti í bíl með hræðilegum afleiðingum

Harmleikur í hitabylgju – Gleymdi tveggja ára dóttur sinni úti í bíl með hræðilegum afleiðingum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Guðrún ætlar ekki að flytja inn í Biskupsgarð – Agnes flytur út og glæsihýsið verður selt

Guðrún ætlar ekki að flytja inn í Biskupsgarð – Agnes flytur út og glæsihýsið verður selt