Matvælaráðuneytið greindi frá því síðdegis að blindur maður, Már Gunnarsson, þurfi ekki að greiða himinháan kostnað sem fylgi því að taka leiðsöguhundinn sinn með í frí til landsins. Margra mánaða barátta Más við kerfið hefur því fengið farsæla lausn.
DV greindi frá málinu í gær en haustið 2022 hélt Már, sem er þekktur tónlistarmaður, til náms í Bretlandi. Með honum í för var hjálparhundurinn hans Max, en Már er blindur og því háður aðstoð félaga sína. Komu þeir heim til Íslands fyrir nokkru í sumarfrí og óttaðist Már þá að hann þyrfti að láta vin sinn frá sér vegna himinshás kostnaðar. Hafði hann óskað eftir svörum frá MAST og tilheyrandi ráðuneyti um langt skeið án svara.
Max er skilgreindur sem hjálpartæki í eigu hins opinbera, og kostaði það Má um 600 þúsund krónur að taka hann með sér heim í sumarfrí. Í kjölfar fréttaflutnings um málið hefur ráðuneytið fundið lausn á málinu þannig að Már þarf ekki að bera hann.