fbpx
Föstudagur 22.nóvember 2024
Eyjan

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Innri maður okkar kjörnu fulltrúa

Eyjan
Sunnudaginn 18. júní 2023 18:00

Ole Anton Bieltvedt.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Upp á síðkastið hafa tvö mál komið upp og verið í umræðunni, þar sem sérstaklega hefur reynt á innri mann – eðlishneigð, heilindi og manndóm – okkar kjörnu fulltrúa; alþingismanna og ráðherra.  Hafa ráðamenn þurft að koma til dyranna, eins og þeir eru klæddir; sýna sitt rétta andlit. Fróðleg upplifun það.

Frjáls og tolllaus innflutningur úkraínskra afurða?

Það var sorglegt og í raun áfall, að fylgjast með umræðu, afstöðu og svo afgreiðslu, eða afgreiðsluleysi, Alþingis á umsókn Úkraínumanna um það, að þeir mættu áfram selja sínar afurðir til Íslands, eins og til annarra evrópskra þjóða, án þess að íþyngjandi innflutningstollur væri lagður á afurðirnar.

Hér mætti reyndar fyrsta spyrja, af hverju eiga yfir höfuð að vera verndartollar fyrir kjúklingaframleiðslu á Íslandi!? Íslenzkir framleiðendur njóta þá þegar verndar í því, að flutningskostnaður til Íslands er hár. Úkraínska kjúklinga þarf fyrst að flytja – kælda eða frosna, sem kostar dýra orku – þvert yfir Evrópu, svo yfir mikinn hluta Atlantshafs. Hver er sérstakur kostnaður við kjúklingaframleiðslu hér, sem réttlætir verndartoll!?

Ólafur Stephensen upplýsir á Vísi: „Matvælaráðuneytið metur það svo, að haldi innflutningur á úkraínskum kjúklingum áfram, í sama mæli og verið hefur, nemi það um 2-3% af markaðinum fyrir kjúklingakjöt“.

Fyrr má nú bévítans sjálfselskan og aumingjaskapurinn vera í kjúklingabændum og þeirra fulltrúum á þingi og í ríkisstjórn, hér einkum Bjarna Benediktssyni – tollamál eru á hans borði -, Sigurði Inga, sem virðist hafa leitt andófið og andleg smámennin og Guðrúnu Hafsteinsdóttur, formanns efnahags- og viðskiptanefndar, sem líka hefði getað, eða átt, að láta málið til sín taka.

Úkraínumenn eru stórlega heftir í lífi sínu og starfi, útilokaðir frá eðlilegum framleiðslu- og starfsháttum, þar sem mikill hluti fullorðinna karla og kvenna gengur þar nú fram fyrir skjöldu í baráttunni við illvirkjann Pútín, eru á vígvellinum, fórnar þar lífi og limum, blóði sínu, til verndar þjóð sinni og tilveru hennar, líka frelsis og öryggis Evrópu allrar, og svo ganga íslenzkir kjúklingabændur, líka alþingismenn og ráðherrar, grenjandi um út af 2-3% arðsemismissi!

Ef orðin ræfilsháttur og aumingjaskapur voru ekki gerð og færð inn í tungumálið út af svona háttsemi og framferði, þá veit ég ekki út af hverju.

Reyndar stilltu sér tveir ráðherrar upp utan vesældardropahópsins, Guðlaugur Þór, með beittri ræðu, og Þórdís Kolbrún, með einörðu tali, án þess þó að gera neitt, nema að rausa. Hvaða gagn er að svona sýndarsnakki, þegar gjörðir fylgja ekki orðum?

Eðli hvalveiða og umræðan um þær

Allir, sem sjá vilja, vita fullvel, að veiðar á langreyðum, næst stærstu tegund spendýra á jörðu, háþróuðum dýrum, sem byggja upp fjölskyldu- og vinabönd, kenna hverju öðru, leika sér og vinna saman, gleðjast og hryggjast, eins og við, mennirnir og önnur spendýr, byggja að verulegu leyti á heiftarlegu dýraníði, enda skip, tækni og drápsbúnaður frá miðri síðustu öld.

Lífið er murkað úr blessuðum dýrunum, sprengiskutlum jafnvel skotið í þau aftur og aftur, meðan skutlar, sem fyrir sitja í dýrinu, rífa innyfli þess, líffæri og hold, jafnvel klukkustundunum saman.

Slíku má helzt líkja við miskunnarleysi miðalda, grimmd og hrottaskap, allir sjá það, nema blindir séu, enda veiðir engin önnur þjóð, þeirra rúmlega 200 þjóða, sem jörðina byggja, langreyði, nema við, aumir Íslendingar.

Ráðamenn, líka Þórdís Kolbrún, halda því fram, að Norðmenn stundi sömu veiðar með sama hætti. Þetta eru ósannindi eða þekkingarleysi. Norðmenn stunda einvörðungu veiðar á hrefnum, sem eru margfalt minni dýr en langreyðar, og, sem mest má drepa örugglega með einu skoti.

Við þessi ósköp bætist svo það, að þessar veiðar hafa engum hagnaði skilað áratugum saman. Enginn efnahagslegur tilgangur með þeim!

Skoðanakönnun Heimildarinnar – afstaða ráðherra

Þann 26. maí birti Heimildin skoðanakönnun, sem hún hafði gert meðal ráðherra og alþingismanna, þar sem menn voru spurðir um afstöðuna til hvalveiða.

Allt þetta fólk veit auðvitað fullvel, að framangreind lýsing mín á eðli hvalveiða, er rétt. Spurningin um afstöðu snýst því um, hvort mannúð, væntumþykja við dýr, náttúru og lífríki og sæmilega hátt siðferði ráði för, eða þjónkun við Kristján Loftsson og þá klíku útgerðarmanna og íhaldsseggja, sem hann styðja.

Heimildin spurði ráðherrana 12. Aðeins 2 svöruðu: Svandís Svavarsdóttir sagði: „Það, að dýr þjáist klukkustundunum saman við aflífun er óforsvaranlegt.“ Þetta er auðvitað hárrétt, en hjá Svandísi eru þetta því miður bara orðin tóm. Hún er fagráðherra á sviði sjávarútvegs, og hefði, ein og sér, getað stöðvað veiðar með einu pennastriki. Gerir samt ekkert. Undirlægjuháttur við klíkuveldið og úrtölur.

Katrín Jakobsdóttir, sem þóttist vera mikill og einarður andvígismaður hvaladráps, áður en hún varð forsætisráðherra, sagði þetta: „Persónulega tel ég ekki sjálfgefið, að þessar veiðar haldi áfram.“ Einkar máttlaust og lélegt svar, engin afstaða, aðeins aumingjalegt gaspur konu, sem þóttist vera dýravinur og umhverfissinni, en brást.

10 ráðherrar virðast ekki hafa svarað. Svarleysi verður þó að telja svar í sjálfu sér: Samþykki og stuðningur við veiðar.

Þórdís Kolbrún var reyndar búin að lýsa fullum stuðningi við hvalveiðar – „Það segir okkur enginn fyrir verkum með þessi mál, ekki heldur ferðamenn“ -, góður skammtur af monti og þjóðernisrembingi það, því Íslendingar eiga ekki langreyðarnar, frekar en 30-40 aðrar þjóðir, sem búa við Atlantsála, en þeir eru heimkynni langreyða og annarra hvala.

Langreyðaveiðar eru því engan veginn eitthvert sérstakt íslenzkt mál, heldur mál tuga strandþjóða Atlantshafs, og eru Íslendingar því hér með ofbeldi og yfirgangi að murka líftóruna úr dýrum, þvert á vilja allra hinna þjóðanna.

Þegar dýpra er litið, eiga þessu háþróuðu dýr sig svo líka sjálf; hafa rétt á sjálfstæðu, náttúrulegu eigin lífi.

Allir hinir ráðherrarnir 9 styðja því og styrkja hvalveiðar, eða hafa ekki kjark eða manndóm í sér til að segja annað:

Áslaug Arna, Ásmundur Einar, Bjarni Bendiktsson, Guðlaugur Þór, Guðmundur Ingi, Jón Gunnarsson, Lilja Alfreðsdóttir, Sigurður Ingi og Willum Þór. Fyrir mér má skömm þeirra vera mikil!

Innri maður og afstaða einstakara þingmanna

Af óbreyttum þingmönnum lýstu þessir sig stuðningsmenn áframhaldandi og óbreyttra hvalveiða:

Ágúst Bjarni Garðarsson, Bergþór Ólafsson, Bryndís Haraldsdóttir, Guðrún Hafsteinsdóttir, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, Teitur Björn Einarsson. Sex. Það, sem vekur sérstaka undrun mína hér og vonbrigði, er afstaða Guðrúnar Hafsteinsdóttur, sem ég hef talið góða konu og væna, með hlýtt hjarta og gott, til dýra og manna.

Þeir óbreyttu þingmenn, sem ekki svöruðu, en vænta má, að styðji þá hvalveiðar, eða þora ekki að rísa gegn þeim, eru þessir:

Ásmundur Friðriksson, Berglind Ósk Guðmundsdóttir, Birgir Ármannsson, Birgir Þórarinsson, Bjarni Jónsson, Diljá Mist, Halla Signý Kristjánsdóttir, Ingibjörg Ísaksen, Jóhann Friðrik Friðriksson, Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, Líneik Anna Sævarsdóttir, Njáll Trausti Friðbertsson, Óli Björn Kárason, Sigmundur Davíð, Sigurjón Þórðarson, Vilhjálmur Árnason, Þórarinn Ingi Pétursson. 17.

Þá vita dýra-, náttúru- og umhverfissinnar það. Lítið grænt og umhverfisvænt hjá þessum mannskap.

Reyndar svöruðu 3 þingmenn ekki, sem undirritaður veit, að eru heilir og sannir dýra- og hvalavinir: Björn Leví, Oddný G. Harðardóttir og Þorgerður Katrín. 3.

Góðir og gegnir andstæðingar hvalveiða og dýra-, náttúru- og umhverfisvinir eru þessir þingmenn:

Andrés Ingi, Arndís Anna Gunnarsdóttir, Bjarkey Olsen, Gísli Rafn, Guðbrandur Einarsson, Guðmundur Ingi Kristinsson, Halldóra Mogensen, Hanna Katrín, Helga Vala, Inga Sæland, Jakob Frímann, Jódís Skúladóttir, Jóhann Páll, Logi Einarsson, Orri Páll, Steinunn Þóra Árnadóttir, Tómas A. Tómasson, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, Þórhildur Sunna og Þórunn Sveinbjarnardóttir. 21.

Tvístígandi virðast þessir þingmenn vera:

Ásthildur Lóa, Friðjón Friðjónsson, Kristrún Frostadóttir og Stefán Vagnsson. 4. Þetta fólk mætti hafa í huga, að hlutleysi af þessu tagi er aldrei hlutleysi.

Sérstaka athygli og vonbrigði veldur svar nýs formanns Samfylkingar, Kristrúnar Frostadóttur: „Þetta er ekki mál, sem ég, formaður Samfylkingarinnar, legg áherzlu á núna. En, það þarf að skoða betur veitingu þessara leyfa.“ Eru þá dýra-, náttúru og umhverfismál, dýravelferð og dýravernd, ekki meðal áherzlumála Kristrúnar!? Hefur hún kannske enga skoðun eða afstöðu í grænum málum!?

 Höfundur er samfélagsrýnir og dýraverndarsinni

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: „Fake News“, „Fake Stories“, eru eitt stórfelldasta og hættulegasta vandamál okkar tíma

Ole Anton Bieltvedt skrifar: „Fake News“, „Fake Stories“, eru eitt stórfelldasta og hættulegasta vandamál okkar tíma
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 dögum

Ágúst Borgþór skrifar: Er hægt að létta þessari martröð af þjóðinni?

Ágúst Borgþór skrifar: Er hægt að létta þessari martröð af þjóðinni?
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ragnar segir tíma til kominn að þora að spyrja stóru spurninganna um lífeyrissjóðina – „Við erum þrælar eigin kerfis“

Ragnar segir tíma til kominn að þora að spyrja stóru spurninganna um lífeyrissjóðina – „Við erum þrælar eigin kerfis“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Brynjar átti ekkert mótsvar á Grund

Brynjar átti ekkert mótsvar á Grund