Enska götublaðið Daily Star tók á dögunum saman knattspyrnumenn sem hafa stundað og rætt um hópkynlíf.
Samantekin inniheldur meðal annars Cristiano Ronaldo og hinn huggulega Hernan Crespo.
Umrædda menn má lesa um hér að neðan.
Ronaldo og félagar:
Cristiano Ronaldo, Nani og Anderson þá leikmenn Manchester United borga fimm gleðikonum fyrir að koma í sundlaugina á heimili Ronaldo. Feitur og sköllóttur bílstjóri Ronaldo bættist í hópinn og var sagður skemma stemminguna.
Ein konan talaði um það að typpið á Nani væri skringilega vaxið.
Hernan Crespo:
Hinn magnaði sóknarmaður frá Argentínu hefur sagt frá því að hann hafi oft stundað hópkynlíf.
„Þegar ég var ungur fór ég oft í orgíu með mörgum konum. Ég var einhleypur, ríkur og frægur fótboltamaður þangað til ég var 27 ára. Þetta var bara eðlilegt held ég, ég er ekki stoltur en þetta er hluti af því að læra í lífinu;“ segir Crespo.
Vagner Love:
Sóknarmaðurinn sem gerði það gott með CSKA Moskvu hefur einnig rætt um hópkynlíf.
„Ég er hættur núna þar sem ég er giftur. En þegar við vorum kannski sex vinir saman þá vildum við fá átta stelpur. Sumar konur elska fótboltamenn og tala svo um þetta við vini sína. Það er samkeppni á milli þeirra,“ segir Vagner.
Russell Hoult
Ekki þekktasta stærðin í boltanum en lék 200 leiki í ensku úrvalsdeildinni. Var rekinn frá West Brom eftir að myndband af honum í hópkynlífi fór í birtingu, hann var klæddur búningi West Brom í þeirri athöfn.
Knattspyrnuliðið Brann:
Árið 2021 fór lið Brann í fréttirnar þegar liðið var að djamma saman og 12 leikmenn buðu fjórum konum að koma á heimavöll félagsins eftir drykkjur.
„Við þurfum að biðjast afsökunar,“ sagði Daniel Pedersen fyrirliði Brann á þeim tíma.