Héraðssaksóknari hefur ákveðið að fella niður rannsókn á kæru sem lögð var fram gegn Vítalíu Lazarevu vegna meintrar fjárkúgunar á hendur þeim Ara Edwald, Hreggviði Jónssyni og Þórði Má Jóhannessyni þar sem málið þótti ekki líklegt til sakfellingar. Frá þessu greinir Heimildin.
Þremenningarnir kærðu bæði Vítalíu og fyrrum sambýlismann hennar, Arnar Grant, til héraðssaksóknara á síðasta ári, en héldu þeir fram að þau Vítalía og Arnar hefðu reynt að hafa af þeim fé, haft í hótunum við þá og brotið gegn friðhelgi þeirra.
Má rekja málið til frásagnar og síðar kærðu Vítalíu á hendur þremenningunum vegna atviks sem átti sér stað í heitum potti í sumarbústað árið 2020. Vítalía steig fram og sagði mennina hafa brotið á sér. Hún kærði þá svo fyrir kynferðisbrot á síðasta ári en héraðssaksóknari ákvað í apríl á þessu árið að fella rannsóknina niður. Sú ákvörðun hefur verið kærð til ríkissaksóknara.
Lögmaður Vítalíu sagði í yfirlýsingu til Heimildarinnar að réttlætið hafi nú sigrað hvað kæru þremenningana gegn skjólstæðingi hans varðar. Heimildin greinir frá því að óvíst sé hvort rannsókn á hendur Arnari Grant, sem þremenningarnir kærðu líka, hafi sömuleiðis verið felld niður.
Sjá einnig: