Á meðal fjölmargra eigna á fasteignavef DV er eign í blokkaríbúð á Grandavegi í Reykjavík. Í auglýsingu segir að um sé að ræða atvinnuhúsnæði skráð sem heilsurækt og verslun, samtals 273,6fm. Hvort rýmið fyrir sig hefur sjálfstætt fastanúmer í dag en hefur verið sameiginlega breytt í 4 íbúðir sem allar eru í útleigu. Útleiguíbúðirnar hafa haft aðgengi að rækt, sána og auka baðherbergjum og sturtum sem er í sameign íbúðareigenda alls hússins. Út frá þessari aðstöðu er stór afgirt verönd til suðurs með heitum potti.
Fyrirliggjandi eru samþykktar teikningar að breytingu á hinu selda rými í tvær glæsilegar samþykktar íbúðir á jarðhæð annars vegar um 120 fm og hins vegar um 150fm íbúð. Stærri íbúðin er teiknuð sem tvær íbúðir á einu fastanúmeri (105fm. og 45fm.).
Það er þó ekki staðsetningin eða lýsingin á eigninni sem hafa vakið athygli netverja sem deilt hafa fasteignaauglýsingunni á samfélagsmiðla um helgina, heldur myndirnar. Á meðal athugasemda sem fallið hafa um auglýsinguna á samfélagsmiðlum eru:
„Þarna hefði nú bara mynd af blokkinni + teikning af rýminu verið góður kostur að nota ásamt textalýsingu hjá fasteignasölunni. En hvað veit ég samt verandi ekki fasteignasali.“
„Þar sem ég hef einstaklega gaman af myndum þá fór ég að skoða, sá ég myndavél á fæti við hjónarúmið, þetta er skráð sem atvinnuhúsnæði en kommon.“
„Man eftir þáttunum Allt í drasli.”
Nánari upplýsingar um eignina má finna hér.