Ole Anton Bieltvedt, stofnandi og formaður Jarðarvina – félagasamtaka um dýra-, náttúru- og umhverfisvernd, sakar Davíð Oddsson og Morgunblaðið um ritskoðun og að nýta sér einokunarstöðu blaðsins á prentmiðlamarkaði til þess að ýta efni í vaxandi mæli til hliðar sem samræmist ekki stefnu blaðsins og skoðunum ritstjórans.
Þetta kemur fram í aðsendri grein Ole Anton á Eyjunni þar sem hann skýtur föstum skotum og birtir síðan greinina í heild sinni sem fjallar á neikvæðan hátt um hvalveiðar. Segir Ole Anton að Davíð gangi á bak fyrri orða sinna þegar hann tók við sem ritstjóri miðilsins.
„Þegar núverandi ritstjórar tóku þar ritstjórnarvöldin, 25. september 2009, sagði annar þeirra, Davíð Oddsson, þetta: „Blað gengur út á, að koma gagnrýnisröddum að, svo allir geti komizt að eigin niðurstöðum, þegar öll sjónarmið hafa fengið framgang. Þetta var flott hugsun hjá Davíð, vel mælt, góð stefna, en gallinn er bara sá, að hann stendur ekki við hana. Svíkur sína eigin yfirlýstu stefnu meir og meir,“ skrifar Ole Anton.
Að hans mati hefur ritskoðun á efni Morgunblaðsins stóraukist eftir fall Fréttablaðsins.
„Einokunaraðstaða blaðsins á prentmiðlamarkaði hefur verið notuð, misnotuð, meir og meir, til að fyrirbyggja frjáls skoðanaskipti, frjálsa umræðu og frjálsa skoðanamyndun í landinu. Lítið „sjálfstæði“ í því hjá málgagni Sjálfstæðisflokksins. Vanvirða fyrir flokkinn og aldar gamalt blaðið, sem á að standa fyrir og tryggja „sjálfstæði“; frelsi landsmanna til orðs og æðis,“ skrifar Ole Anton.
Hann segir sjávarútveginn vera ríki í ríkinu og þaðan komi skýrar línur til ritstjóra um það sem má og ekki má í efnismeðferð og birtingum.
„Sjávarútvegurinn vill hvalveiðar, fullt frelsi til allra athafna og arðflettingar af hafinu og engar takmarkanir eða skerðingar, af neinu tagi á sinni starfsemi, en sjávarútvegurinn flokkar fornaldarlegar veiðar og grimmdarlegt og siðlaust dráp á háþróuðum spendýrum, langreyðum, sem flokka verður sem fíla hafsins, með veiðum á fiskum, sem eru miklu einfaldari dýr og hluti af náttúrlegri lífskeðju annarra fiska, sjávardýra og manna,“ skrifar Ole Anton.
Segir hann að Morgunblaðið þráist við að birta fréttir eða annað efni þar sem hvalveiðar séu gagnrýndar þrátt fyrri að aðeins 29% þjóðarinnar séu hlynnt hvalveiðum. „Skítt með skoðun þjóðarinnar!“ skrifar Ole Anton.
Hér má lesa greinina sem Ole Anton fullyrðir að Morgunblaðið hafi ekki viljað birta.