Hollywood-stjarnan Rainn Wilson er mikill Íslandsvinur á dögunum var hann til viðtals um nýja sjónvarpsþætti sem hann ber hitann og og þungann af. Í þáttunum, sem bera heitið Rainn Wilson and the Geography of Bliss ferðast leikarinn, sem hlaut heimsfrægð eftir hlutverk sitt sem Dwight Schrute í sjónvarpsþáttunum The Office, til landa sem eru ofarlega og neðarlega á alþjóðlegum mælikvörðum yfir hamingju þjóða.
Þar hafa Íslendingar iðulega verið ofarlega á blaði og í heimsókn Wilson til landsins reynir hann að greina hver ástæðan er fyrir þessari ánægju landsmanna með lífið. Í innslaginu um Íslands skellir stjarnan sér í sjósund, knúsar lömb, fær sér ís og drekkur lýsi af áfergju til þess að komast að sannleikanum.
Sjá einnig: Hollywoodstjarna sprellar með Ísland á Twitter: „Þetta er bara grjót og mosi“
„Ísland er land andstæðna. Ég hef aldrei hitt einstaklingsmiðaðra fólk en Íslendinga. Þeir eru pínulítið skrýtnir, dásamlegir og áhugaverðir. En á sama tíma þá elska þeir sameiningarmátt þjóðarinnar,“ er haft eftir leikaranum í kynningarviðtali fyrir þættina.
Hann segist upplifa að á Íslandi sé hárfínt jafnvægi milli ofstækisfullrar einstaklingshyggju og persónulegrar tjáningar en á sama tíma að treysta á samtakamáttinn og upplifa sig sem hluta af samfélaginu. Það sé eitthvað sem Bandaríkjamenn eigi eftir að uppgötva.
Wilson hefur sjálfur verið opinskár með glímu sína við andlega kvilla, hann hafi glímt við þunglyndi og kvíða á unglingsárum og alist upp í óhamingjusamri fjölskyldu. Sú reynsla hans gerir þættina mjög persónulega þar sem hann leitar svara við því af hverju sumar þjóðir eru hamingjusamari en aðrar.