Fitnessdrottningin Hafdís Björg Kristjánsdóttir er komin með nýtt tattú sem er tileinkað kærasta hennar, áhrifavaldinum Kristjáni Einari Sigurbjörnssyni.
Á herðablaði hennar stendur: „Love me, till I die. K.E.S,“ eða „Elskaðu mig, þar til ég dey.“
K.E.S stendur fyrir Kristján Einar Sigurbjörnsson og fékk DV það staðfest frá parinu að um væri að ræða alvöru tattú.
Það er því óhætt að segja að Hafdísi og Kleina sé alvara um hvort annað.
Samband parsins hefur vakið talsverða athygli. Í lok mars var greint frá því að þau væru nýtt par, Hafdís steig þá fram og sagði þau aðeins vera að deita. Viku síðar fóru þau á fyrsta formlega stefnumótið og birtu nokkrar myndir, en ástin kulnaði eftir nokkra daga og leiðir þeirra skildu. En amor ætlaði ekki að gefast svona auðveldlega upp og skráði áhrifavaldaparið sig í samband á Facebook þann 23. apríl síðastliðinn. Þau byrjuðu maí mánuð á Ítalíu og hafa verið dugleg að birta myndefni af hvort öðru á samfélagsmiðlum.