fbpx
Mánudagur 03.febrúar 2025
433Sport

Birtir athyglisvert myndband og hjólar í KSÍ í ljósi stöðunnar – „KSÍ clowns“

433
Mánudaginn 22. maí 2023 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er mikill hiti á milli Knattspyrnusambands Íslands og FH þessa stundina. Félagið er ósátt við framgöngu sambandsins, þá aðallega framkvæmdastjórans Klöru Bjartmarz, í máli Kjartans Henrys Finnbogasonar á dögunum.

Kjartan var dæmdur í eins leiks bann af Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ á dögunum fyrir olnbogaskot sem hann veitti Nikolaj Hansen, leikmanna Víkings, í leik liðanna fyrir rúmri viku. Framherjinn fékk ekki rautt spjald fyrir atvikið í leiknum en Klara vísaði málinu hins vegar til nefndarinnar, sem svo dæmdi hann í bann.

FH vill meina að um klárt óviljaverk hafi verið að ræða í tilfelli Kjartans. „Um það verður ekki deilt að þessi heimild er til staðar. Hins vegar er framganga framkvæmdastjórans í greinargerð sinni til Aga- og úrskurðarnefndar ámælisverð. Þannig fullyrðir framkvæmdastjórinn tvívegis í greinargerð sinni að Kjartan hafi sýnt óíþróttamannslegan og hættulegan leik. Það er að mati FH algjörlega ótækt og í ósamræmi við málskotsheimild framkvæmdastjórans að hún taki afstöðu í málinu með svona afgerandi hætti,“ segir meðal annars í yfirlýsingu félagsins.

Þá vill FH meina að niðurstaðan gefi slæmt fordæmi. „Niðurstaða nefndarinnar var hins vegar sú að þrátt fyrir að ekki teldist staðfest að brotið hafi verið framið af ásetningi, þá teldist það engu að síður vera „alvarlegt agabrot“ og að Kjartan hafi sýnt af sér „alvarlega grófan og hættulegan leik.“ Að mati FH heldur slíkur rökstuðningur eða málflutningur ekki vatni og býður augljóslega upp á að það verði nóg að gera hjá framkvæmdastjóra KSÍ og Aga- og úrskurðarnefndinni í sumar að dæma leikmenn í leikbönn fyrir möguleg óviljaverk.“

Í gær mættust svo Víkingur, með umræddan Hansen innanborðs, liði HK í Bestu deildinni. FH-ingar voru fljótir á ritvöllinn eftir að danski framherjinn sást veita Eiði Atla Rúnarssyni, leikmanni HK, olnbogaskot í leiknum.

„Þetta getur nú ekki verið annað en leikbann!!!! KSÍ clowns,“ skrifaði Sigurður Gísli Bond Snorrason sparkspekingur og birti myndband með.

Úvarpsmaðurinn Orri Freyr Rúnarsson var einnig á meðal þeirra sem tjáðu sig. „Jæja, Hansen getur nýtt bannið í að láta brenna aftur fyrir æðarnar í nefinu á sér.“

Yfirlýsing FH í heild
Á fundi Aga- og úrskurðarnefndar KSÍ á föstudag var Kjartan Henry Finnbogason úrskurðaður í eins leiks bann fyrir „alvarlega grófan og hættulegan leik“ eins og segir í úrskurðinum. Atvikið sem um ræðir er barátta Kjartans Henrys og Nicolaj Hansen, leikmanns Víkings, inni í vítateig FH-inga í leik liðanna síðastliðinn föstudag.

Dómarar leiksins sáu ekki atvikið en framkvæmdastjóri KSÍ, Klara Bjartmarz, nýtti sér ákvæði í lögum KSÍ sem heimilar framkvæmdastjóra KSÍ að skjóta málum til Aga- og úrskurðarnefndar.

Um það verður ekki deilt að þessi heimild er til staðar. Hins vegar er framganga framkvæmdastjórans í greinargerð sinni til Aga- og úrskurðarnefndar ámælisverð. Þannig fullyrðir framkvæmdastjórinn tvívegis í greinargerð sinni að Kjartan hafi sýnt óíþróttamannslegan og hættulegan leik. Það er að mati FH algjörlega ótækt og í ósamræmi við málskotsheimild framkvæmdastjórans að hún taki afstöðu í málinu með svona afgerandi hætti. Framkvæmdastjórinn hefur vissulega heimild til að vísa málinu til nefndarinnar en hún getur ekki sest í dómarasæti eða tekið að sér málflutning fyrir aðra hlið málsins líkt og hún gerir í greinargerð sinni.

Í úrskurði Aga- og úrskurðarnefndar kemur fram að nefndin tekur undir þau sjónarmið FH að „ókleift sé að fullyrða að leikmaður FH hafi af ásetning gerst brotlegur gagnvart leikmanni Víkings R.“ Með öðrum orðum, þá telur nefndin ómögulegt að dæma um hvort að um viljaverk hafi verið að ræða í umræddu tilviki af hálfu Kjartans. Í huga FH, og líklega flestra annarra, þá ættu óviljaverk leikmanna varla að geta flokkast undir óíþróttamannslega hegðun eða gróf og alvarleg brot beri að refsa sérstaklega fyrir með leikbanni á síðari stigum. Niðurstaða nefndarinnar var hins vegar sú að þrátt fyrir að ekki teldist staðfest að brotið hafi verið framið af ásetningi, þá teldist það engu að síður vera „alvarlegt agabrot“ og að Kjartan hafi sýnt af sér „alvarlega grófan og hættulegan leik.“ Að mati FH heldur slíkur rökstuðningur eða málflutningur ekki vatni og býður augljóslega upp á að það verði nóg að gera hjá framkvæmdastjóra KSÍ og Aga- og úrskurðarnefndinni í sumar að dæma leikmenn í leikbönn fyrir möguleg óviljaverk.

FH telur ljóst að megin ástæða þess að nefndin komst að þessari mótsagnakenndu niðurstöðu var málflutningur og fullyrðingar framkvæmdastjórans í greinargerð sinni til nefndarinnar. Þá má einnig álykta að mikil og einhliða fjölmiðlaumfjöllun um atvikið, og ekki síður um þann tiltekna leikmann sem var til skoðunar, hafi haft áhrif á bæði greinargerð framkvæmdastjórans og niðurstöðu nefndarinnar. Sé það rétt ályktað þá er það grafalvarlegt mál. Framkvæmdastjóri KSÍ og meðlimir Aga- og úrskurðarnefndar verða að sýna þann styrk og sjálfstæði að geta tekið hlutlæga afstöðu til mála af þessu tagi, á grundvelli gagna og sjónarmiða málsaðila, en ekki láta utanaðkomandi atriði hafa áhrif á niðurstöður.

FH telur að ef litið yrði hlutlægt á umrætt atvik, óháð fjölmiðlaumfjöllun og persónum og leikendum, þá teldist brotið ekki verðskulda rautt spjald, og hvað þá leikbann á síðari stigum. Í atvikinu voru tveir leikmenn að kljást án bolta í vítateig og keppast um að vinna sér stöðu vegna væntanlegrar fyrirgjafar. Slík stöðubarátta á sér stað ótal sinnum í hverjum leik. Í þetta skiptið vildi svo óheppilega til að við það að reyna að hindra för leikmanns Víkings þá rak leikmaður FH handlegg sinn í andlit leikmanns Víkings sem fékk við það blóðnasir. Í því fólst vissulega brot, þó óviljandi væri, sem rétt hefði verið að refsa fyrir með vítaspyrnu og gulu spjaldi. Ásetningur um að slá leikmann Víkings í andlitið var hins vegar ekki til staðar og allt tal um olnbogaskot er einfaldlega ekki í samræmi við myndbrot af atvikinu.

Knattspyrnusambandið þarf alvarlega að íhuga stefnu sína í þessum málaflokki. Fyrir ekki svo löngu síðan nýtti framkvæmdastjórinn sér þetta sama ákvæði í lögum KSÍ vegna atviks í leik Fram og ÍBV. Aga- og úrskurðarnefndin ákvað í því tilviki að aðhafast ekkert þrátt fyrir að myndbandsupptökur virðast sýna að þar hafi verið um óíþróttamannslegan og hættulegan leik að ræða.

KSÍ þarf að hætta að velta sér upp úr því hver umræðan er á samfélagsmiðlum og þora að taka ákvarðanir byggðar á staðreyndum og sýna festu í þessum málum líkt og öðrum. Með þessu fordæmi sem þeir sýna með þessum úrskurði þá má sambandið búast við því að það verði nóg að gera hjá framkvæmdastjóranum í sumar og við vonum að hún beri gæfu til að taka á þessum málum af meiri fagmennsku en hún hefur gert í þeim tveimur málum sem hafa snert Fimleikafélagið á þessu tímabili.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Ótrúlegt atvik á fréttamannafundi – Henderson reifst við fréttamann í nokkrar mínútur

Ótrúlegt atvik á fréttamannafundi – Henderson reifst við fréttamann í nokkrar mínútur
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Faðir Haaland með fast skot á Arsenal eftir gærdaginn

Faðir Haaland með fast skot á Arsenal eftir gærdaginn
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Viðurkennir að Salah hafi engan áhuga á að verjast

Viðurkennir að Salah hafi engan áhuga á að verjast
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Hundfúll eftir niðurlæginguna: ,,Skammarleg frammistaða“

Hundfúll eftir niðurlæginguna: ,,Skammarleg frammistaða“
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Fyrstur í sögu félagsins til að skora tvær þrennur í röð

Fyrstur í sögu félagsins til að skora tvær þrennur í röð
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

England: Mateta kláraði Manchester United – Tottenham með flottan sigur

England: Mateta kláraði Manchester United – Tottenham með flottan sigur