Fjármálaráðuneytið virðist vera í stökustu vandræðum með að taka saman upplýsingar um lögfræðikostnað þess og Lindarhvols. Borið er við miklum önnum og orlofi.
Blaðamaður Eyjunnar óskaði eftir því við stjórn Lindarhvols ehf. og fjármálaráðuneytið þann 14. apríl síðastliðinn að fá afhenta alla reikninga sem Lindarhvoll hefur móttekið og greitt fyrir lögfræðiþjónustu frá 1. janúar 2018 fram til dagsins í dag. Sérstaklega var tekið fram að óskað væri eftir því að engar upplýsingar á reikningunum yrðu afmáðar.
Erindið var sent til Esther Finnbogadóttur, sem er starfsmaður fjármálaráðuneytisins og eini stjórnarmaður Lindarhvols, og afrit á Guðmund Árnason, ráðuneytisstjóra.
Þá var einnig óskað eftir yfirliti yfir lögfræðikostnað Lindarhvols og ráðuneytisins sem fallið hefur til vegna dómsmáls Frigusar út af sölunni á Klakka sem nú hefur verið áfrýjað til Landsréttar.
Þann 19. apríl barst svar frá Esther þess efnis að beiðni væri móttekin og vænta mætti svars í kringum mánaðamótin apríl/maí.
Næst barst svar 3. maí um að ekki hefði verið unnt að ljúka afgreiðslu á erindinu en vænta mætti svars í vikunni á eftir, þ.e. í síðustu viku.
Föstudaginn 12. maí barst svo þriðja svarið. Í því kom fram að vegna anna við önnur brýn verkefni og orlofs hafi ekki verið unnt að ljúka afgreiðslu á erindinu en gera megi ráð fyrir því að svar berist fyrir lok maí.
Þannig virðast miklar annir og mannekla standa í vegi fyrir því að fjármálaráðuneytið geti afgreitt upplýsingabeiðnir vel og tímanlega. Á heimasíðu ráðuneytisins eru skráð netföng 106 starfsmanna. Ekki kemur fram hvort allir eru í fullu starfi eða hve margir eru nú í orlofi.