Lögreglubílar og sjúkrabíll voru á vettvangi um fjögurleytið í dag eftir árekstur strætisvagns (leið 15) og fólksbíls. Meðfylgjandi myndir frá vettvangi tók ökumaður er þarna var staddur. Segist hún hafa séð nokkra lögreglubíla og einn sjúkrabíl á staðnum.
Atvikið átti sér stað fyrir utan Vodefone-bygginguna við Suðurlandsbraut.
Þær upplýsingar fengust frá umferðardeild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu að 13 manns hafi verið í strætisvagninum. Tveir hafi hlotið minniháttar meiðsl í árekstrinum en ekki var vitað hvort um var að ræða farþega í strætisvagninum eða fólksbílnum. Atvikið er ekki talið alvarlegt.