Mauricio Pochettino sem er að taka við sem stjóri Chelsea ætlar að leggja áherslu á það að félagið haldi Masoun Mount hjá félaginu, framtíð kappans er í óvissu.
Mount hefur ekki viljað skrifa undir nýjan samning við Chelsea en hann er á leið inn í síðasta ár sitt af samningi.
Samkvæmt enskum blöðum vill Pochettino halda í Mount og leggur áherslu á það við félagið.
Mount er enskur landsliðsmaður en hann er orðaður við Newcastle og Liverpool í sumar.
Chelsea þarf að selja leikmenn í sumar til að komast í gegnum FFP reglur en félagið hefur eytt miklum fjármunum í leikmenn síðasta árið.