Í nýjum Náttfara-pistli á Hringbraut skrifar Ólafur Arnarson að brátt komi í ljós hvort Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, sé sannur dýravinur eða hvort hún aðhyllist dýraníð. Tilefni skrifanna er nýútkomin skýrsla Matvælastofnunar um framvindu hvalveiða hér við land á síðasta ári, en þar kemur fram að dauðastríð hvala getur verið langt og hvalafullt eftir að þeir eru skotnir með skutli með sprengioddi.
„Með útgáfu umræddrar svartrar skýrslu hefur magnast krafan um að stórhvaladrápi verði hætt strax. Nú er ekki lengur hægt að skoða málið, setja það í nefnd og svæfa það með einhverjum hætti. Nú þarf að stíga skrefið til fulls og banna þessa starfsemi. Dýraníð má ekki viðgangast lengur.“
Ólafur segir valdið nú vera hjá Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra sem komi frá Vinstri grænum sem gefa sig út fyrir að vera flokkur náttúruverndar og þar með dýraverndar þó að talsvert vanti upp á að forystumenn flokksins hafi sýnt þá stefnu í verki. Nú sé tækifærið. „Ef Svandís lætur þetta ástand viðgangast eftir að hafa fengið upp á yfirborðið svo svarta skýrslu, ætti hún og flokkur hennar hið minnsta hætta að gefa sig út fyrir að þykjast vera náttúruverndarflokkur.“
Ólafur segir ekki lengur hægt að benda á Kristján Þór Júlíusson og Einar Kristinn Guðfinnsson, fyrrum ráðherra Sjálfstæðisflokksins í málaflokknum, sem sökudólga hvað hvalveiðar varðar. Þeir séu ekki lengur við völd.
„Nú er það ráðherra Vinstri grænna sem hefur nú valdið og framvindu þessa máls í hendi sér. Aðhyllist Svandís Svavarsdóttir dýraníð eða er hún sannur dýravinur?
Við fáum brátt svör við því.“
Líflegar umræður hafa skapast á Facebook síðu Hringbrautar um skrifin. Pistilinn er hægt að lesa hér.