Jordan Henderson, fyrirliði Liverpool, er ánægður með gengi Liverpool undanfarið þrátt fyrir erfitt tímabil.
Liverpool hefur valdið vonbrigðum í ensku úrvalsdeildinni á leiktíðinni. Það er ólíklegt að liðið nái Meistaradeildarsæti, þó vonin sé enn til staðar.
„Tímabilið hefur verið rússíbani. Við höfum átt erfitt með að finna stöðugleika. Við höfum átt mjög góða leiki en ekki nógu góða inn á milli,“ segir Henderson.
Leikmenn Liverpool hafa tekið sig saman í andlitinu undanfarið og litið betur út.
„Sem betur fer hefur okkur tekist að standa saman. Við höfum verið mun líkari sjálfum okkur undanfarnar vikur.
Við höfum sýnt mjög jákvæð merki undanfarið. Vonandi getum við klárað tímabilið vel og tekið það með okkur inn í næstu leiktíð.“