Diljá Pétursdóttir komst ekki áfram á seinna undanúrslitakvöldi Eurovision sem fór fram í kvöld í Liverpool í Bretlandi. Sextán lönd stigu á stokk í kvöld en aðeins tíu þeirra komust áfram.
Ísland var sjöunda á svið þar sem Diljá söng lagið Power af gríðarlegum krafti eins og henni einni var lagið. Laginu var ekki spáð góðu gengi af veðbönkum áður en Diljá hóf raust sína en þegar flutningnum var lokið hóf Ísland að klifra upp lista veðbanka. Það reyndist því miður ekki duga og Diljá og Íslendingar sitja því eftir með sárt ennið.
Lögin sextán í kvöld voru Danmörk, Armenía, Rúmenía, Eistland, Belgía, Kýpur, Ísland, Grikkland, Pólland, Slóvenía, Georgía, San Marínó, Austurríki, Litháen og Ástralía.
Þau lönd sem sátu eftir ásamt Íslandi voru Grikkland, Danmörk, Rúmenía, Georgía og San Marínó.
Lögin tíu sem komust áfram keppa á úrslitakvöldinu laugardaginn 13. maí ásamt lögunum 10 sem komust áfram á þriðjudag og stóru löndunum fimm: Bretland, Frakkland, Ítalía, Spánn og Þýskaland, og sigurvegara 2022, Úkraínu.