Lyfja hefur lagt fram kæru til lögreglu á hendur fyrrverandi starfsmanni fyrirtækisins fyrir tilefnislausa uppflettingu í lyfjagátt. Morgunblaðið greinir frá þessu. Í umfjöllun miðilsins kemur fram að uppflettingin sem varð til þess hafi átt sér stað árið 2021 en eftir að Embætti landlæknis staðfesti að slíkt hefði átt sér stað var málið tilkynnt til lögreglunnar.
Morgunblaðið greindi fyrst frá því um miðjan apríl að miðillinn hefði undir höndunum gögn sem sýndu að einstaklingur hefðu flett upp þjóðþekktu fólki í lyfjaávísunarkerfi landlæknisembættisins, yfirleitt kallað lyfjagátt, og upplýsingum þaðan dreift til þriðja aðila. Þá kom fram að Embætti landlæknis, Lyfjastofnun og Persónuvernd staðfestu öll að þeim hefðu borist ábendingar um slíkt.
Hildur Þórisdóttir, mannauðsstjóri Lyfju, sagði í skriflegu svari til DV að öryggi viðskiptavina skipti fyrirtækið öllu máli.
„Lyfju barst erindi sem snýr að tilefnislausum uppflettingum fyrrum starfsmanns í lyfjaávísanagátt fyrir þó nokkru síðan en samdægurs upplýsti Lyfja Persónuvernd um málið og óskaði eftir aðstoð embættis Landlæknis við rannsókn þess. Tilefnislaus uppfletting í lyfjaávísanagátt er brot á lögbundinni þagnarskyldu, en slík brot heyra undir viðeigandi eftirlitsstofnanir og lögreglu. Lyfja beinir slíkum málum í lögbundinn farveg, viðkomandi stofnanir taka síðan ákvörðun um framhald málsins,“ segir Hildur.
Hún segir að öryggi viðskiptavina okkar skiptir öllu máli og að Lyfja leggi mikið upp úr að ítrasta trúnaðar sé gætt í starfi sérfræðinga fyrirtækisins þegar persónuleg gögn viðskiptavina eru meðhöndluð.
„Stuðst er bæði við tæknilegar og skipulegar öryggisráðstafanir, sem eru í sífelldri þróun, til þess að tryggja öryggi persónuupplýsinga. Allir starfsmenn undirrita trúnaðaryfirlýsingar þegar þeir hefja störf, taka þátt í skipulagðri og skjalfestri fræðslu samkvæmt gæðakerfi Lyfju, meðal annars í meðferð persónuupplýsinga. Verkferlar Lyfju eru í stöðugri endurskoðun og sæta eftirliti Lyfjastofnunar. Aðgangur að lyfjaávísanagátt er nauðsynlegur svo starfsmenn Lyfju geti sinnt hlutverki sínu, en slíkur aðgangur er takmarkaður, aðgangsstýrður og uppflettingar eru skjalfestar,“ segir Hildur og bætir við:
„Lyfja lítur málið alvarlegum augum, en áréttar að um einangrað tilvik virðist vera að ræða og getur ekki tjáð sig um málefni einstakra fyrrverandi starfsmanna.“