Antonio Rudiger varnarmaður Real Madrid tók Erling Haaland framherja Manchester City og pakkaði honum saman í gær. Það sést best á hitakorti framherjans.
Rudiger gerði ýmislegt til að pirra norska framherjann eins og sjá má í myndbandi neðst í fréttinni.
Um var að ræða fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar. Gestirnir frá Englandi stýrðu leiknum í fyrri hálfleik án þess þó að skapa sér álitleg færi.
Það var hins vegar Real Madrid sem skoraði eina mark hálfleiksins með sínu eina skoti. Markið gerði Vinicius Junior með flottu skoti eftir glæsilega skyndisókn heimamanna.
Um miðjan seinni hálfleik jafnaði City með stórkostlegu skoti Kevin De Bruyne. Á þeim tíma höfðu heimamenn verið líklegri en það er ekki að því spurt.
Heimamenn gerðu nokkuð áhlaup að marki gestanna á lokamínútum leiksins. Meira var hins vegar ekki skorað
🇩🇪🦾 Rüdiger had one job last night! pic.twitter.com/otLC9dNe0L
— EuroFoot (@eurofootcom) May 10, 2023