Alfie Haaland, faðir Erling Haaland segir að honum hafi verið hent út af Santiago Bernabeu í gær fyrir að fagna marki Kevin de Bruyne í 1-1 jafntefli gegn Real Madrid í Meistaradeildinni í gær.
Haaland sem er í dag umboðsmaður Erling var í einkastúku á vellinum en var vísað af henni og fylgt út af vellinum.
Alfie var sakaður um að hafa niðurlægt stuðningsmenn Real og kastað í þá mat. Hann segir það tóma þvælu.
„Real Madrid var ekki ánægt með að við fögnuðum marki KDB, fyrir utan það þá voru stuðningsmenn Real ekki ánægðir með 1-1 jafntefli,“ sagði Alfie.
Alfie var sjálfur leikmaður City en hann lék einnig með Leeds en leikurinn í gær var fyrri leikur liðanna.
Ok. RM was not happy we were celebrating KDB goal. Other than than that we had to move because RM fans not happy with 1-1 https://t.co/PWpk6EAPUp
— Alfie Haaland (@alfiehaaland) May 10, 2023