fbpx
Föstudagur 31.janúar 2025
Fréttir

Fjórir af hverjum tíu þolendum kynferðisbrota undir 18 ára aldri

Jakob Snævar Ólafsson
Þriðjudaginn 9. maí 2023 15:07

Myndin tengist fréttinni ekki beint.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ríkislögreglustjóri hefur birt nýja skýrslu um kynferðisofbeldi hér á landi á fyrstu þremur mánuðum þessa árs.

Helstu niðurstöður skýrslunnar eru þær að tilkynningum um kynferðisbrot hefur farið fækkandi.

Á tímabilinu voru tilkynnt alls 123 kynferðisbrot til lögreglunnar. Þetta eru 25 prósent færri brot en tilkynnt voru á sama tímabili, að meðaltali, á árunum 2020-2022.

Af tilkynntum kynferðisbrotum, fyrstu þrjá mánuði þessa árs, voru 42 nauðganir en tilkynntum nauðgunum hefur fækkað um 9 prósent, að meðaltali, frá fyrstu þremur mánuðum áranna 2020-2022.

Tilkynnt var um 27 kynferðisbrot gegn börnum sem er 22 prósent fækkun frá fyrstu þremur mánuðum síðasta árs.

Í skýrslunni kemur fram að tilkynningum í öllum flokkum kynferðisbrota hafi farið fækkandi.

Fram kemur að frá og með þessu ári sé skráning brotaþola í kynferðisbrotamálum orðin markvissari og upplýsingar um þá skráðar í öllum málum en áður var það gert í 75 prósent mála.

Í þessum 123 kynferðisbrotamálum sem tilkynnt voru fyrstu 3 mánuði ársins voru 92 prósent brotaþola kvenkyns. Meðalaldur brotaþola var 22 ár en 42 prósent þeirra voru undir 18 ára aldri. Af grunuðum í þessum málum voru 94 prósent karlkyns. Meðalaldur grunaðra var 35 ár og því tæplega 13 ára aldursmunur að meðaltali á brotaþolum og grunuðum.

Í skýrslunni er sérstaklega tekið fram að heilbrigðisráðherra hafi skipað starfshóp sem ætlað er að kortleggja og samræma fyrirkomulag varðandi aðkomu heilbrigðisstarfsfólks þegar upp kemur grunur um kynferðisofbeldi í garð barna. Hópnum er einnig ætlað að skýra boðleiðir milli lögreglu, barnaverndar og heilbrigðiskerfisins en ekki hafi verið til staðar samræmt verklag um heilbrigðisþjónustu við börn yngri en 18 ára vegna kynferðisofbeldis.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Kynferðisbrotamaður sleppur með skilorð eftir að móðir og stjúpfaðir brotaþola létu hendur skipta

Kynferðisbrotamaður sleppur með skilorð eftir að móðir og stjúpfaðir brotaþola létu hendur skipta
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Sjáðu Þór bjarga Hugin – Myndband

Sjáðu Þór bjarga Hugin – Myndband