fbpx
Sunnudagur 05.janúar 2025
Fréttir

Lætur „góða fólkið“ og innflytjendur heyra það – „Ísland skuldar okkur ekkert. Það eru forréttindi en ekki réttur að fá að búa hér“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 9. maí 2023 09:00

Rajan Parrikar er upprunalega frá Goa en er nú búsettur á Íslandi.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rajan Parrikar, sem upphaflega er frá Goa í Indlandi en er nú búsettur á Íslandi, segir harðstjórnarminnihluta „góða fólksins“ beita aðferðum sem líkja megi við kúganir, varðandi víðtækar gerviumsóknir hælisleitenda og flóttamanna hérlendis. Segir Rajan að fjölmargir innflytjendur séu of kröfuharðir en Ísland skuldi þeim ekki neitt. Þetta kemur fram í aðsendri grein Rajan sem birtist í Morgunblaðinu í dag.

„Móðursjúkar dramadrottningar og dyggðaflaggandi kjánar“

Grein Rajan hefst á vangaveltum um uppnámið sem varð vegna sýningarinnar Madame Butterfly á dögunum þar sem skipuleggjendur verksins voru sakaðir um rasisma og menningarlegt eignarnám því að íslenskir leikarar voru farðaðir og klæddir upp sem japanskir einstaklingar í sýningunni. Þó Rajan taki undir að að menningarlegt eignarnám sé vissulega til þá eigi það ekki um þetta mál sem hann segir að hafi verið  fáránlegt upphlaup „móðursjúkra dramadrottninga og dyggðaflaggandi kjána.“  Tók hann sem dæmi að ef íslensk kona myndi klæðast indverskum sarí-klæðnaði þá myndi hann líta á það sem „menningarlegt þakklæti“.

Rajan segir síðan að það sama sé uppi á teningnum varðandi málefni hælisleitenda hérlendis.

Hælis- og flóttamannastarfsemin orðin að heimilisiðnaði

„Þessi harðstjórnarminnihluti notar sömu aðferðir í öðrum málaflokkum. Hælis- og flóttamannastarfsemin er í dag orðin að heimilisiðnaði. Fólk um allan heim hefur fundið út hvernig eigi að spila með innflytjendakerfin á Vesturlöndum. Í þessari viðleitni á það bandamenn („góða fólkið“) í hverju landi sem þau ákveða að taka fyrir. Vinnubrögðin eru einföld en áhrifarík: Samúðarmenn í Reykjavík kveikja bál á samfélagsmiðlum, bandamenn þeirra á prent- og sjónvarpsmiðlum magna síðan upp herferðina og halda heimamönnum í gíslingu heimtufrekjunnar. Allir sem andmæla stefnu þeirra um að halda hliðinu opnu fyrir endalausum innflytjendastraumi eru úthrópaðir „rasistar“ eða „útlendingahatarar“. „Framsæknir“ hafa skapað eitrað andrúmsloft þar sem heiðarleg, opinská umræða er kæfð. Slík ógnarstjórn er óviðunandi og ætti ekki að líðast,“ skrifar Rajan

Segir hann að ójöfnuður í efnahagsmálum sé því miður lífsins staðreynd og agnarsmátt íslenskt þjóðfélag geti ekki leyst þau ógnarstóru vandamál sem mannkynið stendur frammi fyrir.

„Móttaka hælisleitenda og flóttamanna, einungis til að skreyta „góða fólkið“ dyggðum, mun enda með ósköpum fyrir íslensku þjóðina,“ skrifar Rajan.

„Allt of margir innflytjendur í dag telja sig eiga kröfur“

Í greininni rifjar hann síðan upp sögu Indverjans S. Chandrasekhar (Chandra) sem  var skipaður prófessor í stjarneðlisfræði við háskólann í Chicago, þurfti að glíma við margvíslegt mótlæti vegna kynþáttarfordóma sem hann tókst á við „uppréttur af innri styrk“. Að endingu vann hann sér sess sem einn fremsti stjarneðlisfræðingur 20. aldar og Nóbelsverðlaun í eðlisfræði árið 1983.

„Enginn af jólasveinunum sem benda á „rasisma!“ á Íslandi þarf að standa frammi fyrir neinu í líkingu við þann kynþáttafjandskap sem áður ríkti á Vesturlöndum. Þvert á móti býður Ísland nútímans upp á ein bestu lífskjör jarðar. Allt of margir innflytjendur í dag telja sig eiga kröfur. Ísland skuldar okkur ekkert. Það eru forréttindi en ekki réttur að fá að búa hér. Flóttamennirnir og klappliðið þeirra, sem benda fingrum sínum ásakandi á Ísland, kjósa að líta fram hjá því að samfélögin sem þeir koma frá eru yfirleitt mun óréttlátari og fjandsamlegri aðkomumönnum en löndin sem þeir leita skjóls í,“ skrifar Rajan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Landlæknir Bandaríkjanna vill vara við krabbameinshættu sem fylgir áfengisneyslu – Áfengisiðnaðurinn nötrar

Landlæknir Bandaríkjanna vill vara við krabbameinshættu sem fylgir áfengisneyslu – Áfengisiðnaðurinn nötrar
Fréttir
Í gær

Ákvað að fara ekki í bæinn á gamlárskvöld heldur vera heima og ná myndbandi af ótrúlegu samspili

Ákvað að fara ekki í bæinn á gamlárskvöld heldur vera heima og ná myndbandi af ótrúlegu samspili
Fréttir
Í gær

Tónlistarmaðurinn Árni Grétar „Futuregrapher“ Jóhannesson er látinn

Tónlistarmaðurinn Árni Grétar „Futuregrapher“ Jóhannesson er látinn
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Armando biður um hjálp – Hefur þú séð þennan bíl?

Armando biður um hjálp – Hefur þú séð þennan bíl?
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Vilhjálmur með ákall eftir umdeildar hækkanir: „Getum við ekki öll verið nokkuð sammála þessu?“

Vilhjálmur með ákall eftir umdeildar hækkanir: „Getum við ekki öll verið nokkuð sammála þessu?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ungur Blönduósingur varð fyrir hrottalegri hópárás í Liverpool

Ungur Blönduósingur varð fyrir hrottalegri hópárás í Liverpool
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðmundur vill banna þetta á íþróttaviðburðum – „Sendir röng skilaboð til barna og ungmenna“

Guðmundur vill banna þetta á íþróttaviðburðum – „Sendir röng skilaboð til barna og ungmenna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nýr þingmaður Flokks fólksins lætur Þórarin Inga heyra það: „Stundum er gott að hafa vit á því að þegja“

Nýr þingmaður Flokks fólksins lætur Þórarin Inga heyra það: „Stundum er gott að hafa vit á því að þegja“