Hún var í sambandi með Brad Pitt frá 1994 til 1997 og Ben Affleck frá 1997 til 2000.
Leikkonan er gestur í nýjasta þætti af vinsæla hlaðvarpinu Call Her Daddy og lætur allt flakka um fyrrverandi elskhugana.
Aðspurð hvor hafi verið betri í rúminu, Brad eða Ben, sagði Gwyneth að það hafi verið meiri ástríða með Brad en að Ben hafi verið með góða tækni.
„Þetta er mjög erfitt,“ sagði hún. „Því með Brad, þá voru svo miklir neistar á milli okkar, svona ástin í lífi þínu og þannig orka. En með Ben, hann var frábær tæknilega,“ sagði hún og bætti við að þeir hafi verið báðir mjög góðir að kyssa.
„Ég trúi ekki að dóttir mín sé að hlusta á þetta!“
Ekki nóg með það heldur var Gwyneth einnig beðin um að taka þátt í leiknum „Fuck, Marry, Kill“ og valið stóð á milli Brad Pitt, Ben Affleck og fyrrverandi eiginmanns hennar, söngvarans Chris Martin.
Leikurinn gengur út á að hún velur einn til að sofa hjá, annan til að giftast og þann þriðja til að drepa.
„Ég held Brad,“ þegar kom að því að velja bólfélaga. Hún sagðist vera til í að giftast Chris Martin aftur. „Þannig já, Ben. Guð blessi hann,“ sagði hún þegar það var ljóst hver örlög hans yrðu í þessum leik.
Þáttinn má horfa eða hlusta á í heild sinni á Spotify.
View this post on Instagram