Hinn mjög svo virti Fabrizio Romano greinir frá því að Jude Bellingham sé svo gott sem orðinn leikmaður Real Madrid. Sögunni um framtíð piltsins er því að ljúka.
Fyrir nokkru síðan hætti Liverpool við að reyna að kaupa Bellingham en hann var einnig orðaður við Manchester liðin bæði.
Romano segir frá því að viðræður séu á lokastigi milli Real Madrid og Dortmund, þá er Bellingham sjálfur búinn að semja um kaup og kjör.
Talið var að val hans væri á milli Real Madrid og City en hann hefur ákveðið að halda til Spánar.
Bellingham verður tvítugur á þessu ári en hann hefur vakið mikla athygli undanfarin ár. Talið er að Real Madrid þurfi að borga 130 milljónir punda fyrir enska landsliðsmanninn.
🚨⚪️ Real Madrid are close to complete deal to sign Jude Bellingham, confirmed. Negotiations are progressing to the final stages.
Personal terms are almost agreed — Juni Calafat, crucial again.
New meeting has been scheduled to complete the agremeent with Borussia Dortmund. pic.twitter.com/EZO76bXiHk
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) May 3, 2023