fbpx
Sunnudagur 15.desember 2024
Eyjan

Gauti segir að verið sé að eyðileggja menntakerfið markvisst með því að breyta því í útungunarstöð fyrir atvinnulífið

Eyjan
Þriðjudaginn 2. maí 2023 14:45

Gauti Kristmannsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gauti Kristmannsson, deildarforseti Íslensku- og menningardeildar HÍ og prófessor í þýðingarfræði, fer hörðum orðum um stjórnun menntamála á Íslandi. Hann segir styttingu framhaldsskólans hafa verið ein verstu pólitísku mistök síðustu ára. Þetta kemur fram í aðsendri grein á Vísir.is.

„Ein verstu pólitísku mistök síðari ára var ákvörðunin um að stytta framhaldsskólann um eitt ár. Margir reyndir skólamenn og -konur mótmæltu þessu, en þetta átti að vera atvinnulífinu til góða, nemendur kæmu ári fyrr út á vinnumarkaðinn. Það hefur ekki gengið eftir, brottfall er mikið og sum taka sér frí eftir þriggja ára puð í framhaldsskóla. Hin koma verr undirbúin og óþroskaðri í háskóla. Það ýtir svo undir brottfall í háskólum. Núna eru heilu kynslóðirnar af drengjum ekki í háskólum. Það var því verr af stað farið en heima setið.“

Gauti hefur ekki síður áhyggjur af þróun háskólanáms. Hann telur menntamálaráðherra vera á villigötum með fyrirætlunum um aukna áherslu á þjónustuhlutverk háskóla við atvinnulífið. Lítið sé hirt um akademískt frelsi í þeim fyrirætlunum:

„Málefni háskólanna hafa mikið verið í umræðu undanfarið, vanfjármögnun þeirra og fleiri mál. Ráðherra háskólamála hyggst bæta við fjármagni til þeirra og er það gott og blessað. En ráðherrann hyggst líka ákveða hvað háskólarnir kenna og telur sig vita best hvað fólk eigi að læra, svokallaðar „STEM“ greinar, sem áður voru kallaðar raungreinar, en orðið, eins og hugmyndafræðin, er innflutningur frá Repúblikanaflokknum í Bandaríkjunum, eins traustvekjandi og það nú er. Hið akademíska frelsi er þar með að engu haft og verður þar gríðarlega afturför að ræða. En hver veit hvaða fög er best að leggja stund á þegar gervigreindarvæðing samfélagsins fer fram? Námsgreinar sem tölvur geta leyst af, eins og til að mynda ýmsar raungreinar, eða námsgreinar þar sem gagnrýnin hugsun er kennd?“

Segir Gauti að valdhafar vilji ná tökum á akademíunni og framtíðarsýnin er svört:

„Allt ber þetta að sama brunni, hið pólitíska vald vill ná tökum á frjálsri hugsun akademíunnar með því að gera hana að „útungunarstöð fyrir atvinnulífið“. Með sama áframhaldi brotnar þetta fjöregg þjóðarinnar endanlega.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Brynjar Níelsson: Sjálfstæðisflokkurinn hætti að tala við kjósendur sína sem misstu þolinmæðina gagnvart flokknum

Brynjar Níelsson: Sjálfstæðisflokkurinn hætti að tala við kjósendur sína sem misstu þolinmæðina gagnvart flokknum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Þrír nýir stjórnendur hjá Lyfju

Þrír nýir stjórnendur hjá Lyfju
Eyjan
Fyrir 5 dögum

KAPP kaupir bandarískt fyrirtæki í Seattle

KAPP kaupir bandarískt fyrirtæki í Seattle
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ólafur Ágúst Hraundal skrifar: Er Vernd einkarekið fangelsi í dulargervi áfangaheimilis?

Ólafur Ágúst Hraundal skrifar: Er Vernd einkarekið fangelsi í dulargervi áfangaheimilis?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Valdalaus Bjarni Ben veitir leyfi til hvaladráps næstu fimm árin – Ný ríkisstjórn hlýtur að ógilda leyfið

Orðið á götunni: Valdalaus Bjarni Ben veitir leyfi til hvaladráps næstu fimm árin – Ný ríkisstjórn hlýtur að ógilda leyfið
Eyjan
Fyrir 1 viku

Skiptar skoðanir á hver fari í raun frjálslega með sannleikann – „Þetta er ekki boðlegur málflutningur hjá þér“

Skiptar skoðanir á hver fari í raun frjálslega með sannleikann – „Þetta er ekki boðlegur málflutningur hjá þér“