fbpx
Miðvikudagur 11.desember 2024
Fréttir

Egill segir Kópavog tapa í samanburði við höfuðstað Norðurlands

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 28. apríl 2023 13:00

Egill Helgason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sjónvarpsmaðurinn Egill Helgason er einn af þeim sem gagnrýnt hefur ákvörðun bæjarstjórnar Kópavogs um að leggja niður Héraðsskjalasafn bæjarins, en ákvörðunin var tekin á fundi bæjarstjórnar á þriðjudagskvöld.

Sjá einnig: Fýkur í Egil yfir kúltúrsleysinu – „Er hægt að koma viti fyrir þetta fólk?“

Í færslu á Facebook ber Egill saman höfuðstað Norðurlands, Akureyri, en íbúatala þar nálgast óðfluga 20 þúsund, við Kópavog sem telur yfir 40 þúsund íbúa.

Það er fagnaðarefni að íbúar Akureyrar skuli loks vera orðnir 20 þúsund. Lífið á Íslandi verður skemmtilegra með stærri og fjölbreyttari þéttbýlissvæðum – jú, ég vil endilega að Akureyri sé borg. Á Akureyri er menning sem er sómi að – Amtsbókasafnið, Héraðsskjalasafnið, menningarhúsið Hof, Sinfónía Norðurlands, Leikfélag Akureyrar, Listasafnið glæsilega, skáldahús Nonna, Matthíasar og Davíðs. Yfir þessu er mikill myndarbragur,“ segir Egill.

En næststærsta borgá Íslandi er þó ekki Akureyri heldur Kópavogur. Þar eru tvöfalt fleiri íbúar en á Akureyri, eða meira en 40 þúsund. Hinn menningarlegi metnaður er þó öllu minni eins og hefur mátt heyra í fréttum undanfarna daga. Þar virðist eiga að skera niður í allri menningarstarfsemi – mörgu af því var komið á laggirnar á tíma hins dugmikla bæjarstjóra Gunnars Birgissonar – og verður að segja eins og er að samanburðurinn við höfuðborg Norðurlands er heldur óhagstæður.

Allir fulltrúar meirihlutans samþykktu tillögu um lokun héraðsskjalasafnins frá Ásdísi Kristjánsdóttur, bæjarstjóra, en fulltrúar minnihlutans greiddu atkvæði á móti tillögunni og gagnrýndu að hún hefði ekki verið nægjanlega kynnt fyrir fundinn.

Tillagan byggðist á úttekt ráðgjafarfyrirtækisins KPMG en svipuð frá fyrirtækinu var til grundvallar þegar borgarstjórn ákvað að leggja niður Borgarskjalasafn á dögunum og leita til Þjóðskjalasafnsins varðandi varðveitingu gagna.

Samkvæmt Hagstofu voru íbúar á Akureyri 19.623 þann 1. janúar síðastliðinn, íbúar Kópavogs voru 39.733 á sama tíma.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Ragnar fór úr rannsókn á ráni í mótmælin við Alþingi – „Ég get ekki bakkað úr svona aðstæðum og ég ætla ekki að skilja þá eftir“

Ragnar fór úr rannsókn á ráni í mótmælin við Alþingi – „Ég get ekki bakkað úr svona aðstæðum og ég ætla ekki að skilja þá eftir“
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Gagnrýnir Þorstein fyrir ummæli um verkakonu í frystihúsi – „En hvert skyldi nú sannleiksgildi þessara orða vera?“

Gagnrýnir Þorstein fyrir ummæli um verkakonu í frystihúsi – „En hvert skyldi nú sannleiksgildi þessara orða vera?“
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Þetta eru helstu leikendurnir í baráttunni um framtíð Sýrlands

Þetta eru helstu leikendurnir í baráttunni um framtíð Sýrlands
Fréttir
Í gær

Eldri borgari vann 70 milljónir og nýbakaður tvíburapabbi 35 milljónir í Happdrætti Háskólans

Eldri borgari vann 70 milljónir og nýbakaður tvíburapabbi 35 milljónir í Happdrætti Háskólans
Fréttir
Í gær

Var með mikið magn af OxyContin innvortis

Var með mikið magn af OxyContin innvortis
Fréttir
Í gær

Efling boðar til aðgerða gegn 100 veitingastöðum

Efling boðar til aðgerða gegn 100 veitingastöðum
Fréttir
Í gær

Vodafone byrjar að rukka mánaðargjöld fyrir netföng

Vodafone byrjar að rukka mánaðargjöld fyrir netföng
Fréttir
Í gær

Drápshundarnir í Langholtshverfi hafa drepið ketti og ráðist á fólk – „Hundarnir endurspegla eigendurna“

Drápshundarnir í Langholtshverfi hafa drepið ketti og ráðist á fólk – „Hundarnir endurspegla eigendurna“