Kamilla hefur gefið út tvær bækur, Kópavogskróníkan árið 2018 og Tilfinningar eru fyrir aumingja árið 2021. Sú seinni var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og leikrit var gert eftir Kópavogskróníkunni, sem sýnt var í Þjóðleikhúsinu og fór Ilmur Kristjánsdóttir með aðalhlutverkið.
Sigurður er annar þáttastjórnenda útvarpsþáttarins Boltinn lýgur ekki á X977 og sjónvarpsþáttarins Lögmál leiksson á Stöð 2.
Greint var frá sambandi þeirra í mars síðastliðnum en ástin hefur fölnað og segist Kamilla vera að kljást við tímamótin á sinn hátt.
„Ég er búin að lita á mér hárið bleikt, panta og afpanta tíma í tattú og overshare-a alls konar um tilfinningar mínar við þrjár ókunnugar manneskjur (reyndi samt alveg að vera fyndin á meðan til að milda þetta). Nei bara svona ef þið voruð að spá hvernig ég er að díla við breiköppið,“ skrifaði hún á Twitter. Hún er einnig skráð einhleyp á Facebook.
Ég er búin að lita á mér hárið bleikt,panta og afpanta tíma í tattú og overshare-a alls konar um tilfinningar mínar við þrjár ókunnugar manneskjur (reyndi samt alveg að vera fyndin á meðan til að milda þetta)
Nei bara svona ef þið voruð að spá hvernig ég er að díla við breiköppið— Kamilla Einarsdóttir (@Kamillae) April 26, 2023
Fókus óskar þeim velfarnaðar á þessum tímamótum.