Maðurinn sem situr í gæsluvarðhaldi í Danmörku vegna ránsins á hinni þrettán ára gömlu Filippu hefur verið kærður fyrir morðið á Emilie Meng sumarið 2016.
Danskir fjölmiðlar greina frá þessu en lögregla boðaði til blaðamannafundar í morgun þar sem þetta kom fram.
Maðurinn sem um ræðir er 32 ára en hann nam Filippu á brott um þar síðustu helgi þegar stúlkan var að bera út blöð. Hún fannst á lífi daginn eftir og er maðurinn, sem ekki hefur verið nafngreindur í dönsku pressunni, grunaður um að hafa nauðgað henni ítrekað.
Strax í kjölfar mannránsins á Filippu vaknaði grunur um að maðurinn hefði átt aðild að hvarfi Emilie Meng í júlí 2016. Hún var numin á brott í bænum Korsør sem er ekki langt frá staðnum sem Filippa var á þegar hún hvarf. Emilie fannst látin á aðfangadag 2016 í vatni við Borup og náðist morðinginn aldrei – ekki fyrr en mögulega núna.
Ekstra Bladet greindi frá því á mánudag að maðurinn hefði verið yfirheyrður á sínum tíma vegna hvarfsins á Emilie.
Á þeim tíma átti maðurinn silfurlitaða Hyundai i30-bifreið sem líktist mjög bifreið sem sást á upptöku eftirlitsmyndavélar á lestarstöð í Korsør nóttina sem Emilie hvarf.
Ekstra Bladet greinir frá því að lögregla hafi nú kært manninn fyrir morðið á Emilie. Þá hefur hann einnig verið kærður fyrir nauðgunartilraun í Sorø í nóvember. Otaði hann hníf að fórnarlambi sínu sem barðist svo hraustlega á móti að hann flúði. Þá segist lögregla rannsaka möguleg tengsl við fleiri álíka mál um allt land.
Á fundinum kom fram að alls hefðu 1.450 DNA-sýni verið tekin í Meng-málinu og virðist lögregla því hafa vel rökstuddan grun um aðild mannsina að morðinu á henni.
DV greindi svo frá því í gær að sérfræðingar hjá lögreglu hefðu bankað upp á hjá fjölskyldu einni í Slóvakíu til að leggja hald á bíl hennar, Hyundai i30 sem stóð í innkeyrslunni. Var það gert að beiðni dönsku lögreglunnar en bíllinn er einmitt sami bíll og maðurinn átti á sínum tíma.