„Það var þoka, það var eins og hún hyrfi inn í þokuna,“ sagði Scott Dudek, einkaspæjari, í samtali við Fox News Digital. „Maður myndi halda að ef einhver klifraði upp á grindverkið með allt þetta fólk og hjólreiðafólk á ferðinni, myndi einhver hafa hringt, en það gerðist ekki, eða einhver hefði reynt að tala hana til og síðan stigið fram eftir alla þess umfjöllun, en það gerðist ekki,“ bætti hann við.
„Það var fullt af fólki á brúnni þennan morgun og við erum enn hissa á þessu,“ sagði Kimberly West, móðir Sydney.
Eftir því sem kemur fram á vefsíðu, sem var sett upp í tengslum við hvarf Sydney, þá fékk hún heilahristing sumarið 2020, áður en hún flutti til Berkeley. Vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar stundaði hún nám sitt á netinu. Það reyndist henni erfitt og ákvað hún að gera hlé á námi sínu fram á haust 2020 til að geta jafnað sig að fullu eftir heilahristinginn segir á vefsíðunni.
Hún dvaldi hjá fjölskylduvinum í Bay Area og fór til Crissy Field eins og svo oft áður þennan morgun en þar stundaði hún oft líkamsrækt og ljósmyndun.