fbpx
Laugardagur 14.desember 2024
Pressan

Gátu skoðað innihald tölvunnar eftir 30 ár – Það grætti móðurina

Pressan
Miðvikudaginn 26. apríl 2023 04:11

Richard og Tamsin.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ungi listamaðurinn Richard McFarlane lést aðeins 17 ára að aldri árið 1991. Hann þjáðist af vöðvarýrnunarsjúkdómi sem varð honum að aldurtila.

Hann lést árið 1991. Hann skildi eftir sig fjölda listaverka í Amiga 500 tölvunni sinni en þau gerði hann með Deluxe Paint forritinu.

Tölvan stóð og safnaði ryki árum saman eftir andlát hans á heimili fjölskyldunnar í Chaddesden í Derby. Fjölskyldan hafði áður reynt að gefa tölvuna en var sagt að enginn vildi svona verðlausa tölvu. Mirror skýrir frá þessu.

En allt breyttist þegar systir Richard, Tamsin, sá að auglýst var eftir tölvum fyrir nýtt tölvusafn í miðborg Derby. Hún gaf safninu, sem heitir Derby Computer Museum, tölvuna. Rob Watson, stofnanda safnsins tókst að afrita gögnin í tölvunni.

Áður en safnið var opnað fyrir almenningi bauð Watson fjölskyldu Richard í heimsókn og sýndi henni að hluti af safninu var tileinkaður Richard. Þar er tölvan hans og veggspjald sem segir sögu hans. Einnig veggspjöld sem hann safnaði á stuttri ævi sinni.

Jen, móðir hans, sagði við þetta tækifæri: „Tölvurnar voru það síðasta uppi á lofti. Við vissum ekki hvað við áttum að gera við þær. Þetta var frábært. Það var gott að gefa einhverjum þær í stað þess að henda þeim. Það yljar manni um hjartaræturnar að sjá þetta hérna. Þetta kom mér á óvart og að sjá það sem er tileinkað honum fékk mig samstundis til að gráta. Þetta er frábært.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Dularfullir drónar herja á New Jersey – Enginn veit hvaðan þeir koma eða hvers vegna þeir eru þarna

Dularfullir drónar herja á New Jersey – Enginn veit hvaðan þeir koma eða hvers vegna þeir eru þarna
Pressan
Fyrir 2 dögum

Guinness í jákvæðum vanda – Neyðast til að takmarka sölu

Guinness í jákvæðum vanda – Neyðast til að takmarka sölu
Pressan
Fyrir 4 dögum

Maðurinn sem sagði „þinn líkami, mitt val“ handtekinn – Spreyjaði piparúða á 57 ára gamla konu sem vildi bara ræða við hann

Maðurinn sem sagði „þinn líkami, mitt val“ handtekinn – Spreyjaði piparúða á 57 ára gamla konu sem vildi bara ræða við hann
Pressan
Fyrir 5 dögum

Morðið á moldríka forstjóranum – Lögregla birtir nýjar myndir, fjölmiðlar misskildu borgarstjóra og Monopoly-seðlar vekja upp spurningar

Morðið á moldríka forstjóranum – Lögregla birtir nýjar myndir, fjölmiðlar misskildu borgarstjóra og Monopoly-seðlar vekja upp spurningar