Málið er líklega bara upphafið að flóðbylgju málshöfðana gegn Fox News og fleiri fyrirtækjum og einstaklingum.
Fyrrgreint mál snerist um fullyrðingar, sem voru settar fram á Fox News, um að kosningavélar Dominion Voting Systems og að hægt hefði verið að brjótast inn í vélarnar og flytja atkvæði frá Donald Trump til Joe Biden.
Smartmatic hefur einnig stefnt Fox News fyrir að hafa sett fram samsæriskenningar um kosningavélar fyrirtækisins, sem voru notaðar í forsetakosningunum 2020, og krefst fyrirtækið 2,7 milljarða dollara í bætur.
Smartmatic hefur einnig höfðað mál á hendur Newsmax og One American News Network sjónvarpsstöðvunum, sem eru báðar lengst til hægri í litrófi stjórnmálanna, fyrir ærumeiðingar með að hafa dreift lygum um fyrirtækið.
Newsmax segir málshöfðunina vera „greinilega tilraun til að kúga frjálsa fjölmiðla“ en hefur beðist afsökunar á að hafa dreift lygum um að starfsfólk Dominion hafi átt við kosningavélar fyrirtækisins til að flytja atkvæði á milli frambjóðendanna.
Dominion hefur einnig höfða mál á hendur Mike Lindell, forstjóra koddafyrirtækisins MyPillow, sem er einarður stuðningsmaður Donald Trump, og Sideny Powell og Rudy W. Giuliani, sem eru báðir lögmenn Trump, fyrir að dreifa staðlausum ásökunum um kosningasvindl.