Amelia Lorente eiginkona Lucas Hernandez hjá FC Bayern hefur opinberlega sakað eiginmann sinn um framhjáhald. Þýskir og ítalskir miðlar segja frá.
Amelia segir að Hernandez hafi undanfarið haldið framhjá sér með Cristina Buccino sem er fyrirsæta.
Amelia birtir þessar ásakanir á Instagram og merkir bæði eiginmann sinn og Buccino við færsluna.
Buccino er hvað þekktust fyrir að hafa verið ástkona Cristiano Ronaldo um nokkurt skeið
„Þú getur ekki haldið áfram að spila með báðum liðum Lucas Hernandez. Ég sendi boltann yfir til þín Cristian Buccino. Ekki gleyma því að þú átt tvö börn sem þú ert ekki að heimsækja núna,“ sagði Amelia í færslu sinni.
Hefur Amelia nú eytt öllum myndum af sér og Lucas Hernandez sem voru á Instagram síðu hennar. Buccino og Cristiano voru saman árið 2016.
„Við hittumst og horfðum í augu hvors annars, hann bauð mér svo í kvöldverð eins og herramaður. Hann er frábær,“ sagði Buccino um sambandið á sínum tíma.
View this post on Instagram