Héraðsdómur Reykjaness hefur kveðið upp þann úrskurð að Miðbaugur ehf, rekstrarfélag gleraugnaverslananna Optical Studio, verði að greiða fyrrverandi starfsmanni sínum tæpar 2 milljónir króna í laun og önnur starfshlunnindi. Umræddur starfsmaður, sem er sjóntækjafræðingur að mennt, sagði upp störfum hjá fyrirtækinu eftir langt starf í verslun félagsins í Reykjanesbæ og tilkynnti um stofnun annarrar gleraugnaverslunar, Reykjanes Optikk ehf., í samkeppni við fyrrum vinnuveitanda sinn.
Þegar forsvarsmenn Miðbaugs ehf. voru upplýstir um fyrirætlanir sjóntækjafræðingsins, hættu þeir þegar í stað að greiða henni uppsagnarfrestinn á grundvelli þess að hún væri að undirbúa samkeppnisrekstur meðfram störfum sínum. Héraðsdómur komst þó að þeirri niðurstöðu að það hafi verið óheimilt.
Í dómnum kemur fram að sjóntækjafræðingurinn hafi hafið störf hjá Miðbaugi ehf. árið 1999. Á fundi þann 26. janúar 2022 hafi hún sagt upp störfum á fundi með forsvarsmönnum fyrirtækisins og tilkynnt þá um fyrirætlanir sínar að stofna verslun í Reykjanesbæ í samkeppni við Optical Studio og að hún hafi rætt við tvo reynslumikla starfsmenn Miðbaugs ehf. og boðið þeim að taka þátt í verkefninu. Það hafi síðan orðið ofan á en starfsmennirnir hættu báðir störfum hjá Miðbaugi nokkru síðar.
Rúmri viku eftir að sjóntækjafræðingurinn sagði upp störfum var viðkomandi tilkynnt með bréfi að ráðningasamningnum yrði slitið og að Miðbaugur ehf. myndi ekki greiða það sem eftir væri af uppsagnarfrestinum.
Fyrir dómi hélt lögmaður Miðbaugs því fram að sjóntækjafræðingurinn hefði gerst sek um alvarlegt trúnaðarbrot og þar með fyrirgert samningi sínum. Meðal annars hefði viðkomandi, í félagi við hina starfsmennina tvo, unnið að því að koma á samningssambandi við birgja Miðbaugs ehf. á meðan ráðningarsamningurinn var í gildi.
Í málsástæðum sjóntækjafræðingsins kom fram að hún hafnaði öllum ásökunum um trúnaðarbrot. að samkeppnisrekstur hæfist ekki þegar að einkahlutafélag væri stofnað og var vísað í dómafordæmi um það atriði. Þá sé heimilt að ráða sig til samkeppnisaðila á uppsagnarfresti og hefja þar störf eftir að uppsagnarfresti lýkur.
Sjóntækjafræðingurinn hóf ekki rekstur Reykjanes Optikk ehf. fyrr en í apríl 2022 og því fór hún fram á tveggja mánaða launagreiðslu auk annarra hlunninda.
Niðurstaða dómstólsins var að þrátt fyrir að ljós væri að undirbúningur að samkeppnisrekstrinum hefði hafist á meðan sjóntækjafræðingurinn starfaði fyrir Miðbaug ehf. þá hefði sá rekstur ekki hafist formlega fyrr en eftir að uppsagnarfresti viðkomandi lauk. Þá hafi sönnur ekki verið færðar á það að starfsmennirnir hafi reynt að komast yfir viðkvæmar upplýsingar um viðskiptasambönd á meðan undirbúningi nýja fyrirtækisins stóð.
Niðurstaða Héraðsdóms Reykjaness var því sú að Miðbaugur ehf. skyldi greiða sjóntækjafræðingnum 1.858.306 krónur auk dráttarvaxta. Þá skyldi fyrirtækið greiða 750 þúsund krónur í málskostnað.