fbpx
Sunnudagur 15.desember 2024
Fréttir

KAPP kaupir RAF

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 25. apríl 2023 14:20

Hjalti Halldórsson, Valþór Hermannsson og Freyr Friðriksson brostu breitt í Barcelona í dag.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á sjávarútvegssýningunni í Barcelona í dag var gengið frá kaupum KAPP ehf á öllu hlutafé í hátæknifyrirtækinu RAF ehf.Freyr Friðriksson, eigandi KAPP, segir að með þessum kaupum sjái hann mikil tækifæri til frekari vaxtar KAPP. ,,Ég met það svo að sú mikla þekking og reynsla starfsfólks RAF sem og sá vélbúnaður sem fyrirtækið framleiðir muni styrkja KAPP til frekari sóknar í íslenskum sjávarútvegi og fiskeldi. KAPP þjónustar fyrirtæki í matvælavinnslu til sjós og lands og er kæling matvæla þar í lykilhlutverki. Fyrirtækið rekur einnig véla- og renniverkstæði og sér auk þess um innflutning á kælitækjum frá Incold, Carrier og Titan containers svo eitthvað nefnt.RAF er hátæknifyrirtæki sem sérhæfir sig í vélasmíði, innflutningi og þjónustu á tækjabúnaði fyrir sjávarútveg, fiskeldi og annan iðnað.Valþór Hermannsson, sem stýrt hefur RAF í tæp 20 ár, segir að sameiginlega munu félögin bjóða enn betri þjónustu, styrkja framleiðslu á vörum fyrirtækjanna og þróa nýjar og spennandi lausnir á komandi árum. Hann segir að engar breytingar verði á starfsmannahaldi RAF eða þeirri þjónustu og búnaði sem RAF hefur boðið viðskiptavinum sínum um árabil ,,Með KAPP munu auknir kraftar losna úr læðing þar sem mikill mannauður og reynsla sameinast í þessum tveimur fyrirtækjum, segir Valþór, sem kemur jafnframt inn í stjórnendateymi KAPP.,,Eftir 12 ára eignarhald okkar í RAF og góðan rekstur síðustu ára teljum við að núna sé réttur tímapunktur til að selja félagið. Við höfum átt mjög gott samstarf við stjórnendur KAPP á undanförnum árum og samtöl undanfarna mánuði leiddu til að gengið var frá sölu félagsins og erum fullviss um að KAPP sé rétti aðilinn til að taka við keflinu núna, segir Hjalti Halldórsson, annar eiganda RAF undanfarin 12 ár.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Börn Lúðvíks Péturssonar krefjast úrskurðar um að hann sé látinn

Börn Lúðvíks Péturssonar krefjast úrskurðar um að hann sé látinn
Fréttir
Í gær

Dóru Björt brugðið yfir vöruhúsinu í Álfabakka – Viðstödd borgarráðsfund þar sem byggingarmagnið var samþykkt

Dóru Björt brugðið yfir vöruhúsinu í Álfabakka – Viðstödd borgarráðsfund þar sem byggingarmagnið var samþykkt
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Grindvíkingar hentu 327 tonnum meira af sorpi í sumar en í fyrra

Grindvíkingar hentu 327 tonnum meira af sorpi í sumar en í fyrra
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sakar Viðskiptaráð um þráhyggju og áróður – „Því er eðlilegt að spyrja hvað vaki fyrir Viðskiptaráði með jafn villandi framsetningu?“

Sakar Viðskiptaráð um þráhyggju og áróður – „Því er eðlilegt að spyrja hvað vaki fyrir Viðskiptaráði með jafn villandi framsetningu?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ristaðar möndlur og jólasveinar í Bónus

Ristaðar möndlur og jólasveinar í Bónus
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Æsispennandi kapphlaup um að verða „Trump-hvíslari“ – Hver er með forystuna?

Æsispennandi kapphlaup um að verða „Trump-hvíslari“ – Hver er með forystuna?
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Síbrotamaður slær ekki slöku við þrátt fyrir margra liða ákæru – Fær gistingu í boði skattgreiðenda yfir hátíðarnar

Síbrotamaður slær ekki slöku við þrátt fyrir margra liða ákæru – Fær gistingu í boði skattgreiðenda yfir hátíðarnar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Rannsókn mun fara fram á andláti Lúðvíks

Rannsókn mun fara fram á andláti Lúðvíks