fbpx
Fimmtudagur 12.desember 2024
Pressan

Trúlofaði raðmorðinginn játar á sig fleiri morð – Þar á meðal um tveggja áratuga gamalt mannshvarf sem vakti mikla athygli

Pressan
Mánudaginn 24. apríl 2023 20:30

Levi Bellfield

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Breski raðmorðinginn Levi Bellfield verður brátt yfirheyrður að nýju en The Sun  greinir frá því að hann hafi í skrifað bréf þar sem hann játar á sig hvar 19 ára stúlku, Elizabeth Chau, árið 1999 sem vakti mikla athygli í bresku þjóðfélagi. Chau sást í öryggismyndavélum yfirgefa háskólabyggingu Thames Valley University, þar sem hún stundaði nám en síðan hvarf hún sporlaust.

Bellfield, sem er 54 ára gamall, er alræmdur raðmorðingi sem níddist á ungum stúlkum en hingað til hefur hann játað á sig þrjú morð. Morðiði á hinni þrettán ára gömlu Milly Dowler, Amelie Delagrange sem var 22 ára gömul og morðið á hinni 19 ára gömlu Marsha McDonnel.

Auk morðsins á Chau, sem Bellfield hefur nú játað á sig, þá hefur hann einnig bent á þann stað sem lík hennar á að vera grafið sem og játað á sig fimm aðrar morðtilraunir. Eins og áður segir vakti hvarf Chau mikla athygli. Árið 2012, þrettán árum eftir hvarf hennar, blés Scotland Yard til herferðar þar sem heitið var háum peningaverðlaun fyrir upplýsingar um eitthvað sem gæti leitt til þess að hún eða líkamsleifar hennar fyndust. Sú herferð skilaði engum haldbærum niðurstöðum en nú vonast ættingjar og vinir Chau til þess að þolraun þeirra sé að ljúka og brátt verði upplýst hvað varð um stúlkuna.

Elizabeth Chau

Í mars síðastliðnum vakti Bellfield mikið umtal og reiði í bresku samfélagi. Hann afplánar lífstíðardóm í Frankfield-fangelsinu í Durham-sýslu þar sem flestir hættulegustu glæpamenn Bretlands dúsa. Það voru hins vegar fréttir af því að hann hefði trúlofast fertugum kvenkyns aðdáanda sínum og hygðist giftast henni sem setti allt á hliðina.

Reiðialda gaus upp í samfélaginu og lýstu ýmsir breskir stjórnmálamenn því yfir, þar á meðal Dominic Raab, að komið yrði í veg fyrir að Bellfield, og aðrir hættulegir glæpamenn sem afplána lífstíðardóma, gætu gengið í hjónaband á bak við lás og slá.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

„Undraland vetrarins“ sagt vera hrein blekking

„Undraland vetrarins“ sagt vera hrein blekking
Pressan
Fyrir 2 dögum

Líf hjónanna breyttist mjög þegar dóttir þeirra gekk í hjónaband með Assad

Líf hjónanna breyttist mjög þegar dóttir þeirra gekk í hjónaband með Assad
Pressan
Fyrir 2 dögum

Lét mömmu sína hringja í þingmenn svo hann geti orðið varnarmálaráðherra – „Hann hljóp heim og klagaði í mömmu“

Lét mömmu sína hringja í þingmenn svo hann geti orðið varnarmálaráðherra – „Hann hljóp heim og klagaði í mömmu“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Katie Holmes svarar orðrómunum – „Algjör vitleysa“

Katie Holmes svarar orðrómunum – „Algjör vitleysa“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Réðst á ísbjörn til að bjarga konunni sinni

Réðst á ísbjörn til að bjarga konunni sinni
Pressan
Fyrir 4 dögum

Sakamál: Var framið réttarmorð á Rebeccu eða er hún besti lygari í heimi?

Sakamál: Var framið réttarmorð á Rebeccu eða er hún besti lygari í heimi?
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þessi matvæli á aldrei að setja í ísskáp

Þessi matvæli á aldrei að setja í ísskáp
Pressan
Fyrir 4 dögum

Ertu í vandræðum með silfurskottur? Svona er hægt að losna við þær

Ertu í vandræðum með silfurskottur? Svona er hægt að losna við þær