fbpx
Þriðjudagur 22.apríl 2025
Fréttir

Umfjöllun Kveiks vekur hörð viðbrögð: „Þetta er fólk sem er helsjúkt af græðgi“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 19. apríl 2023 12:30

„Mannvonskan er alltaf afl í öllum samfélögum en það er mælikvarði á gæði samfélaga hversu ágengt henni verður,“ sagði Guðmundur Andri meðal annars.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Óhætt er að segja að umfjöllun Kveiks í gærkvöldi um aðstöðu leigjenda í Reykjavík hafi vakið hörð viðbrögð. Þar var meðal annars sagt frá fjölskyldu frá Venesúela sem býr í kolakjallara húss í hjarta Reykjavíkur.

Fjölskyldan sem um ræðir er komin með vernd hér á landi og hefur hún búið í umræddum kjallara í um eitt ár.

„Þetta er flókið og erfitt; hér eru engir gluggar og því engin birta. Við vitum ekki hvort það er dagur eða nótt. Loftið er afar þungt og kæfandi og við finnum mikla myglulykt,“ sagði kona sem búsett í íbúðinni.

Þá var bent á það að lofthæðin næði varla tveimur metrum og búseta í kjallaranum brjóti til dæmis gegn lögum um brunavarnir, húsaleigu, lögum um hollustuhætti og byggingarreglugerð. Líklega væri um að ræða mannréttindabrot. Sagðist fólkið sem býr í kjallaranum vera að íhuga að kaupa sér slökkvitæki. „Því maður veit aldrei hvað gerist. Auk þess eru veggirnir bara úr pappa.“

Eldurinn fengi líklega að breiðast út

Kveikur fjallaði einnig um fleiri dæmi, til dæmis hús við Holtsgötu og sagði fyrrverandi íbúi í húsinu að íbúar hússins væru í hættu. Þar eru 27 einstaklingar skráðir með lögheimili, mest konur af erlendum uppruna.

„Önnur hæðin og risið, þar eru herbergi sem væri afar snúið að eiga við ef kviknaði í og eldurinn fengi líklega færi á að breiðast út áður en hann uppgötvaðist,“ sagði fyrrverandi íbúi.

Litið á samborgara sem bráð

Fjölmargir hafa tjáð sig um þáttinn á samfélagsmiðlum og brugðist hart við. Í þeim hópi eru til dæmis fyrrverandi þingmenn og borgarfulltrúi.

Guðmundur Andri Thorsson, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, segir augljóst af umfjölluninni að greinilega sé til fólk sem leitast við að hámarka arð sinn af eymd annarra.

„Þetta er fólk sem lítur á samborgara sína sem bráð. Þetta er fólk selur aðgang á uppsprengdu verði að geymslum, kústaskápum, háaloftum og kompum án þess að leggja einu sinni í lágmarks kostnað við að láta þetta líta út eins og mannabústaði. Þetta er fólk sem er helsjúkt af græðgi og mannfyrirlitningu. Mannvonskan er alltaf afl í öllum samfélögum en það er mælikvarði á gæði samfélaga hversu ágengt henni verður.“

Hvetur þingmenn til að horfa

Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi tók undir með Guðmundi Andra. „Allir þingmenn ættu að horfa á þáttinn og fara vinna vinnuna sína og koma húsnæðismálunum í lag,“ sagði hún. Bætti hún við að getu- og áhugaleysi stjórnmálamanna í húsnæðismálum væri miklu stærra vandamál en gráðugir leigusalar.

Sigmundur Ernir Rúnarsson, fyrrverandi ritstjóri Fréttablaðsins og fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, sagði undir færslu Guðmundar Andra: „Glæpur gegn fólki, ekkert minna en það.“

Ólína Þorvarðardóttir, fyrrverandi þingkona, gerði málið einnig að umtalsefni á sinni Facebook-síðu.

„Í Kveik gærkvöldsins sáum við hrikalegt dæmi um óboðlegar húsnæðisaðstæður fjögurra manna fjölskyldu sem býr í myrkri og myglaðri kolageymslu. Aðstæður sem erfitt er að gera sér í hugarlund en einhver náungi fær samt vel á annað hundrað þúsund krónur á mánuði í húsaleigutekjur fyrir að bjóða upp á þetta. Myndirnar held ég að hafi gengið fram af öllu venjulegu fólki,“ sagði Ólína og bætti við að það væri umhugsunarefni hvernig svona lagað gæti viðgengist.

„Er enginn að fylgja eftir húsnæðis og heilbrigðisreglum þegar húsnæði fer í útleigu? Í þættinum var dæmi um hús sem búið var að hólfa niður í allt of margar íbúðir og þar búa allt of margir án þess að brunaútgangar séu tryggðir eða gætt að almennum heilbrigðisaðstæðum. Þetta hlýtur að varða við lög. Varla getur bara hver sem er gert húsaleigusamning um hvaða mygluholu sem er án þess að nokkur maður kanni aðstæður nánar? Ef svo er þarf að breyta lögum strax,“ sagði hún.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Forseti Íslands setur Stóra plokkdaginn á sunnudaginn

Forseti Íslands setur Stóra plokkdaginn á sunnudaginn
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Þarf alltaf að vera vín?

Þarf alltaf að vera vín?
Fréttir
Í gær

Fær ekki að reisa litla virkjun á eigin jörð – Starfsmenn Skipulagsstofnunar og annars sveitarfélags sögðu ekki hafa verið rétt staðið að synjuninni

Fær ekki að reisa litla virkjun á eigin jörð – Starfsmenn Skipulagsstofnunar og annars sveitarfélags sögðu ekki hafa verið rétt staðið að synjuninni
Fréttir
Í gær

Íslendingar minnast Frans páfa – „Væn manneskja“

Íslendingar minnast Frans páfa – „Væn manneskja“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Tólf skotnir til bana á hanabardaga

Tólf skotnir til bana á hanabardaga
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þetta er sagður tilgangur Pútín með páskavopnahléinu sem virðist þó ekki halda

Þetta er sagður tilgangur Pútín með páskavopnahléinu sem virðist þó ekki halda
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Brotist inn í verslun og sjóðsvél stolið

Brotist inn í verslun og sjóðsvél stolið
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Dularfullt mál: Leita að þremur manneskjum eftir að bátur fannst mannlaus

Dularfullt mál: Leita að þremur manneskjum eftir að bátur fannst mannlaus